Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Helena Rafnsdóttir á leið í bandaríska háskólaboltann
Helena skrifar undir hjá University of North Florida. Mynd og frétt af UMFN.is
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 23. desember 2021 kl. 12:28

Helena Rafnsdóttir á leið í bandaríska háskólaboltann

Helena Rafnsdóttir, leikmaður Subway-deildarliðs Njarðvíkur í körfuknatttleik, skrifaði í gærkvöld undir hjá University of North Florida í Bandaríkjunum en þar mun hún dvelja næstu árin við nám og körfuknattleik á skólastyrk. Helena heldur út til Bandaríkjanna í ágúst á næsta ári og mun því ekki leika með Njarðvíkingum á næsta tímabili.

Helena verður fyrsti Íslendingurinn hjá UNF á skólastyrk sem íþróttamaður en skólinn leikur í 1. deild háskólaboltans í ASUN deildinni.

UNF er liðlega 14.000 manna háskóli en í snörpu viðtali á heimasíðu skólans segir Helena að UNF hafi orðið fyrir valinu þar sem henni leist vel á körfuboltaprógrammið, þjálfarateymið og gæði menntunar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nánar má lesa um Helenu og UNF hér að neðan.

Tengdar fréttir