Grindavík vann Tindastól örugglega í undanúrslitum - mætir Keflavík
Grindavík vann Tindastól örugglega í undanúrslitum VÍS biklarkeppni kvenna í körfubolta í Smáranum í dag. Lokatölur 74-99.
Jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik þó Grindavík hafi alltaf haft yfirhöndina. Í síðari hálfleik voru Grindavíkurkonur miklu sterkari og innbyrtu öruggan og stóran sigur, 74-99.
Abby C. Beeman var að vanda öflug og nú skilaði hún 29 stigum í hús og gaf 11 stoðsendingar. Ellen Nystrom var líka mjög góð, skoraði 25 stig, tók 11 fráköst og gaf 5 stoðsendingar. Þá var Farhiya Abdi með 21 stig. Gríðarlega öflugir útlendingar í liði Grindavík og ljóst að það verður hörku viðureign á laugardaginn þegar UMFG mætir Keflvíkingum.
Grindavík: Abby Claire Beeman 29/5 fráköst/11 stoðsendingar, Ellen Nystrom 25/11 fráköst/5 stoðsendingar, Farhiya Abdi 21/5 fráköst, Þórey Tea Þorleifsdóttir 11, Ólöf Rún Óladóttir 8, Ólöf María Bergvinsdóttir 3, Telma Hrönn Loftsdóttir 2, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Emilie Sofie Hesseldal 0/8 fráköst/5 stoðsendingar, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0.





