Keflavík í VÍS bikarúrslit eftir sigur á Hamar/Þór
Keflavíkurkonur eru komnar í VÍS bikar úrslitin í körfubolta eftir sigur á Hamar/Þór í undanúrslitaleik í Kórnum í Kópavogi í dag. Lokatölur urðu 82-77.
Leikurinn var jafn og spennandi. Hamar/Þór náði fimm stiga forskoti í fyrsta leikhluta en Keflavík svaraði með þriggja stiga sigri í öðrum leikhluta. Staðan í hálfleik 36-38 fyrir Hamar/Þór.
Keflvíkingar voru aðeins sterkari í síðari hálfleik og náðu tíu stiga forskoti í fjórða leikhluta. Hamar/Þór náði að minnka muninn í blálokin með mikilli baráttu og minnkaði muninn í þrjú stig þegar 8 sekúndur voru til leiksloka. Thelma Dís Ágústsdóttir fékk tvö vítaskot í næstu sókn og skoraði úr tveimur vítaskotum og tryggði Keflavík sigur. Sigursælasta bikarlið á Íslandi sigldi sigrinum í höfn og á möguleika á sautjánda bikarmeistaratitilinum.
Sara Rún Hinriksdóttir sagði í viðtali við RÚV var sátt með sigurinn og hlakkaði til laugardagsins.
Sara var ekki sátt við sinn leik en hún skoraði 17 stig. Keishana Washington skoraði 21 stig, tók 10 fráköst og gaf níu stoðsendingar. Hin hávaxna Angelina Turmel (196 sm.) skoraði 14 stig og sjö fráköst, Thelma Dís skoraði 11 stig og Anna Ingunn Svansdóttir var með 10.
Anna Clara Paz var með 34 stig hjá Hamar/Þór.





