Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Fimm Íslandsmeistarar og tvö Íslandsmet
Jón Grétar, Sindri Freyr, Þóra Kristín, Hörður og Daníel. Myndir/Massi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 08:47

Fimm Íslandsmeistarar og tvö Íslandsmet

Massi gerði gott mót á Akureyri 20. maí þegar Íslandsmeistaramót í réttstöðulyftu fór fram. Fyrir hönd Massa fóru níu keppendur ásamt þjálfara og fylgdarliði en mótið var haldið af nýstofnaðri kraftlyftingadeild KA og var öll umgjörð þess til fyrirmyndar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í klassískri réttstöðulyftu karla varð Sindri Freyr Arnarsson Íslandsmeistari í -74 kg flokki þegar hann lyfti 232,5 kg. Hörður Birkisson var í öðru sæti og setti tvö Íslandsmet í sínum aldursflokki þegar hann lyfti 192,5 kg og 200 kg. Daníel Patrick Riley endaði í þriðja sæti í flokknum með 192,5 kg.

Jón Grétar Erlingsson tók þriðja sæti í -93 kg flokki þegar hann lyfti 220 kg. Ágúst Aðalbjörnsson keppti einnig í -93 kg flokki og lyfti 190 kg en þess má geta að þetta var hans fyrsta mót.

Í klassískri réttstöðulyftu kvenna varð Guðrún Kristjana Reynisdóttir Íslandsmeistari í -63 kg flokki þegar hún lyfti 130 kg.

Elsa Pálsdóttir varð Íslandsmeistari í -76 kg flokki er hún lyfti 165 kg.

Kristbjörg Lilja Gröndal keppti í +84 kg flokki og lyfti 120 kg.

Þóra Kristín Hjaltadóttir varð Íslandsmeistari i -84 kg er hún lyfti 150 kg. Hún varð einnig Íslandsmeistari í -84 kg í réttstöðu með búnaði og lyfti því sex lyftum þann daginn.

Uppskera mótsins var því fimm Íslandsmeistarar og tvö Íslandsmet hjá liði Massa sem er frábær árangur.

Heildarúrslit mótsins má finna hér

Upptaka frá mótinu má finna hér

Myndir má finna hér hjá Massi Facebook og einnig hér frá KRAFT