Tónlistarskóli RNB vortónleika
Tónlistarskóli RNB vortónleika

Fréttir

Halldóra Fríða tekur við sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir.
Fimmtudagur 8. maí 2025 kl. 06:30

Halldóra Fríða tekur við sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar

Guðný Birna nýr formaður bæjarráðs á meðan á tímabundinni ráðningu stendur

Á fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar, sem haldinn var 30. apríl síðastliðinn, var samþykkt að Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir taki formlega við starfi bæjarstjóra á meðan veikindaleyfi Kjartan Más Kjartanssonar varir. Samþykktin gildir til 1. júní 2025.

Í kjölfar breytingarinnar samþykkti bæjarráð einnig að Guðný Birna Guðmundsdóttir taki við formennsku í bæjarráði og Bjarni Páll Tryggvason verði varaformaður til sama tíma.

Breytingarnar eru gerðar í samræmi við bæjarmálasamþykkt Reykjanesbæjar og miða að því að tryggja eðlilega stjórnsýslu og jafna dreifingu verkefna í fjarveru bæjarstjóra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Halldóra Fríða mun áfram gegna sínu hlutverki sem kjörinn fulltrúi í bæjarráði og bæjarstjórn og halda atkvæðarétti sínum. Kjartan Már Kjartansson, sem er ráðinn bæjarstjóri en ekki kjörinn fulltrúi, hefur í sinni fjarveru ekki atkvæðarétt í ráðum eða nefndum.

Guðný Birna Guðmundsdóttir
Bjarni Páll Tryggvason