Íþróttir

Emil með gull og Elsa bætti eigið heimsmet
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 9. febrúar 2022 kl. 10:30

Emil með gull og Elsa bætti eigið heimsmet

Keppni í lyftingum á Reykjavík International Games (RIG) fóru fram um þarsíðustu helgi.
Tveir keppendur frá Massa tóku þátt. 

Emil Ragnar Ægisson gerði sér lítið fyrir og vann gullverðlaun í ólympískum lyftingum með 326,7 Sinclair-stig. Emil snaraði 123 kg í annarri tilraun og fékk gilt. Í þriðju tilraun reyndi hann við 131 kg sem hefði verið persónuleg bæting en það gekk því miður ekki upp. Í jafnhendingu lyfti hann 150 kg örugglega í fyrstu tilraun en brást bogalistinn í annarri tilraun er hann reyndi við 156 kg. Þau fóru hins vegar upp í þriðju tilraun og var lyftan gild. Samanlagður árangur var því 279 kg en besti árangur Emils er 290 kg.


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Elsa Pálsdóttir keppti í klassískum kraftlyftingum og átti glæsilegt mót. Elsa Lyfti 125 kg í hnébeygju í fyrstu tilraun en fékk ógilt og reyndi því aftur í annarri tilraun og var lyftan þá gild. í þriðju tilraun lyfti Elsa 137,5 kg og bætti þar með eigið heimsmet í -76 kg flokki öldunga M3. Í bekkpressu lyfti Elsa 55 kg, því næst 60 kg og loks 62,5 kg sem er persónuleg bæting um 2,5 kg og nýtt Íslandsmet í hennar flokki. Í réttstöðu var engin undantekning og bætti Elsa eigið heimsmet er hún lyfti 162,5 kg í þriðju lyftu. Samanlagður árangur var því 362,5 kg sem er 10 kg bæting á eigin heimsmeti í -76 kg flokki öldunga M3.

Frétt: umfn.is

Tengdar fréttir