Flugger
Flugger

Fréttir

Sjáanleg aukning í jarðskjálftum og 20 milljón rúmmetrar af kviku
Bylgjuvíxlmynd frá Veðurstofu Íslands sýnir vel landris á svæðinu. Á myndinni eru túlkaðar breytingar í landrisi milli tveggja mynda frá 13. og 28. maí.
Miðvikudagur 29. maí 2024 kl. 10:27

Sjáanleg aukning í jarðskjálftum og 20 milljón rúmmetrar af kviku

Landris við Svartsengi heldur áfram á stöðugum hraða sem bendir til að kvika haldi áfram að safnast fyrir í kvikhólfinu undir Svartsengi. Líkanreikningar áætla að um 20 milljón rúmmetrar af kviku hafi bæst við kvikuhólfið síðan eldgosið hófst 16. mars. Aldrei áður hefur svo mikið magn verið mælt frá atburðinum þann 10. nóvember 2023.

Engin gögn benda til að það sé að draga úr flæði kviku inn í kvikuhólfið. Ekki er hægt að áætla annað en að áfram séu miklar líkur á nýju kvikuhlaupi og öðru eldgosi.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Veðurstofa Íslands segir að töluverð óvissa er þó í kerfinu um hvenær kvikuhlaup og mögulegt eldgos verður og líka nákvæmlega hvar það mun koma upp. Þó er líklegast að kvikuhlaup verði á svipuðum slóðum og þau sex kvikuhlaup sem hafa orðið síðan í nóvember 2023. Líklegt er að fyrirvarinn á því verði stuttur.

Veðurstofan uppfærði hættumat í gær. Það er óbreytt frá síðustu útgáfu sem gildir að öllu óbreyttu til 4. júní.

Þar sem jarðskorpan á umbrotasvæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells er mikið sprungin er líklegt að kvika eigi greiða leið til yfirborðs og því muni ekki endilega fylgja mikil skjálftavirkni þeim umbrotum. Fyrirvarinn á nýju eldgosi getur því orðið mjög stuttur eða jafnvel enginn.

Sjáanleg aukning er í jarðskjálftum á svæðinu. Virknin dreifist frá Grindavík norðaustur að Stóra Skógfelli eftir kvikuganginum.

Graph_timeseries_mogi_is27052024

Línurit sem sýnir þróun kvikusöfnunar og áætlað heildarmagn kviku í kvikuhólfinu undir Svartsengi frá október 25. október. Hvert kvikuhlaup hefur ekki tæmt kvikusöfnunarsvæðið og því er upphafsstaða kvikusöfnunar undir Svartsengi mismunandi í hverri lotu eftir nóvember 2023. Hér sést að heildarmagn kviku hefur aldrei verið meira frá því að kvikugangurinn myndaðist 10. nóvember.

Haettusvaedi_VI_28mai_2024

(Smellið á kortið til að sjá það stærra)