Public deli
Public deli

Fréttir

Meta tjón á fasteignum í Grindavík
Skemmd fasteign í Grindavík. Ljósmyndir/Kristinn Magnússon/Morgunblaðið
Laugardagur 18. nóvember 2023 kl. 13:36

Meta tjón á fasteignum í Grindavík

Náttúruhamfaratrygging Íslands er með tvo hópa matsmannateyma sem fara með eigendum í sín hús til að meta tjón í nokkrum eignum sem eru mikið skemmdar.

Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur haft samband við þessa íbúa. Annað teymi á vegum Náttúruhamfaratryggingar hefur farið með HS Veitum að húsum þar sem heitavatnsnotkun hefur verið óeðlilega mikil undanfarið, með það fyrir augum að finna út úr því hvort um sé að ræða leka í eða við húsin.

Ekki er farið inn í nein hús án þess að eigendur eða fulltrúar þeirra séu viðstaddir.


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024