Fréttir

Fjölmenn útskrift hjá Keili - eitt þúsund í námi í árslok 2019
Frumkvöðullinn Magnús Scheving flutti ræðu við útskriftina. Myndir: Oddgeir Karlsson
Mánudagur 20. janúar 2020 kl. 07:17

Fjölmenn útskrift hjá Keili - eitt þúsund í námi í árslok 2019

Keilir brautskráði 89 nemendur við hátíðlega athöfn í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, föstudaginn 17. janúar 2020. Við athöfnina voru brautskráðir 57 nemendur af Háskólabrú, 25 atvinnuflugmenn og sjö nemendur úr fótaaðgerðafræði. Var þetta í fyrsta sinn sem útskrift Keilis fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ, en fjölmennar útskriftir skólans voru búnar að sprengja utan af sér Andrews Theater á Ásbrú þar sem þær höfðu farið fram undanfarin ár.

Jóhann Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Keilis, flutti ávarp og stýrði athöfninni, auk þess sem Magnús Scheving flutti hátíðarræðu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Samtals hafa nú 3.648 nemendur lokið námi við deildir skólans sem var stofnaður á Ásbrú í Reykjanesbæ í maí 2007. Í lok ársins 2019 voru yfir eitt þúsund nemendur skráðir í nám og námskeið á vegum Keilis og hafa aldrei fleiri aðilar lagt stund á nám við skólann en nú.

Fjöldi nemenda við skólann hefur aukist um 50% frá því í febrúar á þessu ári en munar þar mestu um nýnema í Menntaskólanum á Ásbrú sem hófu nám á stúdentsbraut með áherslu á tölvuleikjagerð í ágúst og atvinnuflugnema sem lögðu áður stund á nám í Flugskóla Íslands, en hann sameinaðist Flugakademíu Keilis í byrjun ársins 2019. Þá tók Keilir einnig við umsjón með námskeiði til inntökuprófs í læknisfræði en þau hafa verið haldin undanfarin ár við góðan orðstír framhaldsskólanema af öllu landinu. Eftir sem áður eru stærstu námsbrautirnar Háskólabrú og atvinnuflugnámið.

Útskrift Háskólabrúar Keilis

Háskólabrú Keilis brautskráði samtals 56 nemendur úr öllum deildum. Berglind Kristjánsdóttir, forstöðumaður Háskólabrúar stýrði útskrift og afhenti viðurkennignarskjöl ásamt Margréti Hanna, verkefnastjóra. Dúx Háskólabrúar var Eva Lind Weywadt Oliversdóttir, með 9,56 í meðaleinkunn. Hún fékk gjafir frá Íslandsbanka og Keili sem viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Valdimar Anton Eiríksson flutti ræðu útskriftarnema.

Með útskriftinni hafa samtals 1.911 nemendur útskrifast úr Háskólabrú Keili frá fyrstu útskrift skólans árið 2008 og hafa lang flestir þeirra haldið áfram í háskólanám bæði hérlendis og erlendis. Aldrei jafn margir nemendur stundað frumgreinanám í Keili og á þessu námsári, en á annað hundrað umsóknir bárust í fjarnám Háskólabrúar sem hófst í byrjun janúar. Þeir bætast við fjölmennasta hóp nýnema í Háskólabrú sem hófu nám síðastliðið haust og stunda þar með núna hátt í þrjú hundruð nemendur frumgreinanám í Keili.

Á fjórða hundrað atvinnuflugnemar hafa útskrifast frá Keili

Flugakademía Keilis - Flugskóli Íslands brautskráði 25 atvinnuflugnema. Samtals hafa 332 atvinnuflugmenn útskrifast sem atvinnuflugmenn frá Keili, en ásamt Flugskóla Íslands hafa skólarnir tveir brautskráð yfir tólfhundruð atvinnuflugmenn frá stofnun þeirra. Að jafnaði leggja á þriðja hundrað nemendur stund á flugnám við skólann á ári hverju.

Björn Ingi Knútsson, forstöðumaður Flugakademíu Keilis - Flugskóla Íslands stýrði útskrift og afhenti atvinnuflugmönnum prófskírteini ásamt Baldvini Birgissyni skólastjóra. Arnar Freyr Jónsson fékk viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur í atvinnuflugmannsnámi með 9,82 í meðaleinkunn. Þetta er önnur hæsta meðaleinkunn í sögu Flugakademíunnar. Fékk hann gjafir frá Icelandair, Air Iceland Connect, Norland Air og Air Atlanta. Ræðu útskriftarnema í atvinnuflugnámi hélt Lars Gustaf Danielsson.

Fótaaðgerðafræðingar útskrifast í þriðja sinn

Sjö nemendur brautskráðust í þriðju útskrift námsbrautar Keilis í fótaaðgerðafræði. Arnar Hafsteinsson, forstöðumaður Íþróttaakademíu Keilis stýrði útskrift og Jóhanna Björk Sigurbjörnsdóttir, þróunarstjóri námsins aðstoðaði við brautskráninguna.

Aðalheiður Hjelm fékk viðurkenningu fyrir góðan námsárangur með 9,21 í meðaleinkunn, en þetta er hæsta lokaeinkunn í sem gefin hefur verið í fótaaðgerðafræðinámi Keilis frá upphafi. Fékk hún gjafir frá Praxis og Áræði. Ræðu útskriftarnema fyrir hönd fótaaðgerðafræðinga flutti Anna Vilborg Sölmundardóttir.

Keilir hefur boðið upp á nám í fótaaðgerðafræði frá febrúar 2017 og stunda að jafnaði á annan tug nemenda námið hverju sinni. Fótaaðgerðafræði er löggilt starfsgrein og teljast fótaaðgerðafræðingar til heilbrigðisstétta.