Aðsent

Vogamódelið – okkar leið í leikskólamálum
Föstudagur 8. maí 2026 kl. 06:17

Vogamódelið – okkar leið í leikskólamálum

Leikskólamál eru eitt af brýnustu verkefnum sveitarfélagsins og við í D-listanum, Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum, leggjum ríka áherslu á að sinna þeim málaflokki vel. Þar er grunnþjónusta sem snertir daglegt líf fjölskyldna, hefur áhrif á velferð barna og skiptir sköpum fyrir þátttöku foreldra á vinnumarkaði. Það er því lykilatriði að leikskólakerfið sé öflugt, sveigjanlegt og umfram allt sjálfbært.

Staðan í dag sýnir að við þurfum að gera betur. Skortur á leikskólaplássum hefur myndast, álag á starfsfólk er mikið og svigrúm til faglegs starfs of lítið. Þrátt fyrir að bætt hafi verið við deild á kjörtímabilinu er ljóst að það dugir ekki eitt og sér til að mæta þeirri þróun sem hefur orðið í sveitarfélaginu.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Til að mæta þessari stöðu viljum við innleiða Vogamódelið - okkar leið í leikskólamálum. 

Vogamódelið byggir á því að styrkja kerfið á fleiri en einn hátt. Það felur í sér 30 klukkustunda gjaldfrjálsa leikskóladvöl, sveigjanlega skráningu dvalartíma sem tekur mið af raunverulegri þörf fjölskyldna og hvata sem styðja við styttri vistun þegar það hentar. Markmiðið er að bæta nýtingu kerfisins, draga úr álagi starfsmanna og barna, auka sveigjanleika fyrir foreldra en jafnframt að efla faglegt starf og gæta að hagsmunum barnanna. 

Jafnframt leggjum við áherslu á að efla faglegt starf í leikskólum með undirbúningstímum fyrir ófaglært starfsfólk og styðja starfsfólk áfram til náms í leikskólafræðum og íslensku. Þá viljum við laða að og halda í fagmenntað starfsfólk með markvissum hvötum til starfa, meðal annars með afslætti af leikskólagjöldum.

Sveitarfélög sem hafa tekið upp sambærileg módel hafa sýnt fram á góðan árangur af breytingunum. Í kjölfar innleiðingar hefur dregið úr manneklu, sem hefur jákvæð áhrif á stöðugleika í starfsmannahaldi og gæði starfsins. Jafnframt hefur dvalartími barna í leikskóla styst, sem getur stuðlað að betra jafnvægi milli fjölskyldulífs og dvalar í skóla. Þá hafa breytingarnar gert það að verkum að fleiri börn komast að í leikskólum, án þess að það komi niður á gæðum þjónustunnar. Einnig hefur áreiti og álag á börn minnkað, sem skapar rólegra umhverfi fyrir þroska þeirra og vellíðan.

Samhliða þessum breytingum hefur verið kynnt innspýting í uppbyggingu skólahúsnæðis við leikskólann með það að markmiði að eyða biðlistum strax í haust. Þar er stigið mikilvægt skref til að bregðast við stöðunni til skamms tíma.

Mikilvægt er að undirstrika að Vogamódelið felur ekki í sér hækkun leikskólagjalda, heldur þvert á móti getur í því falist veruleg hagræðing fyrir fjölskyldur. Það snýst um sanngjarnari og sveigjanlegri þjónustu sem nýtist betur bæði börnum, foreldrum og starfsfólki. Markmiðið er skýrt: að styrkja leikskólakerfið okkar til framtíðar, bæta starfsaðstæður og tryggja að börn og fjölskyldur fái þá þjónustu sem þau þurfa. 

Við viljum halda í það sem gerir Voga að góðum stað til að búa á en það verður ekki gert nema grunnþjónustan sé í lagi og þar skipta leikskólamálin sköpum.

Hulda Blöndal, 3. sæti, og Kristín Arna Hjaltadóttir, 4. sæti,

í framboði D-listans, Sjálfstæðismanna og óháðra í Vogum. 



Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar