Aðsent

Hinir árlegu Stór-tónleikar Forskóladeildar
Miðvikudagur 20. mars 2024 kl. 09:29

Hinir árlegu Stór-tónleikar Forskóladeildar

Fimmtudaginn 21. mars n.k., stendur Forskóladeild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fyrir tvennum Stór-tónleikum í Stapa, Hljómahöll. Á tónleikunum koma fram nemendur í Forskóla 2, sem er allur 2. bekkur grunnskólanna (7 ára börn) og með þeim leika Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Rokkhljómsveit.

Fyrri tónleikarnir verða kl. 17. Á þeim koma fram forskólanemendur úr Háaleitisskóla, Heiðarskóla og Stapaskóla. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Seinni tónleikarnir verða kl. 18. Á þeim koma fram forskólanemendur úr Akurskóla, Holtaskóla, Myllubakkaskóla og Njarðvíkurskóla. Tónleikarnir taka um 30 mínútur hvor. 

Forskóladeildin hefur um langt árabil staðið fyrir Stór-tónleikum einu sinni á vetri, ásamt lúðrasveitinni og oft einnig rokkhljómsveit eins og að þessu sinni, en hljómsveitirnar eru í hlutverki „undirleikara“ fyrir forskólanemendurna. 

Fyrstu árin fóru tónleikarnir fram í grunnskólunum og svo lokatónleikar haldnir í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, en eftir að Hljómahöll var byggð og Tónlistarskólinn þar með kominn með nýtt heimili, var ákveðið að færa tónleikana í hinn glæsilega tónleikasal, Stapa. 

Mikil ánægja hefur verið með það fyrirkomulag enda öll umgjörð tónleikanna hin glæsilegasta, stórt svið og flott sviðslýsing.

Á tónleikunum koma fram alls um 275 börn og ungmenni, þar af um 240 forskólanemendur, sem flytja fjölbreytta og stórskemmtilega efnisskrá, bæði sungna og leikna á hin ýmsu hljóðfæri.  

Allir eru hjartanlega velkomnir.