Viðskipti

Stormbón með almenn bílaþrif og bón á Ásbrú
Kristinn Arnar Sigurðsson opnaði nýverið fyrirtækið Stormbón við Grænásbraut 506 á Ásbrú. VF-mynd: Hilmar Bragi
Föstudagur 14. október 2022 kl. 09:51

Stormbón með almenn bílaþrif og bón á Ásbrú

Kristinn Arnar Sigurðsson opnaði nýverið fyrirtækið Stormbón við Grænásbraut 506 í bili nr. 107 á Ásbrú í Reykjanesbæ. Þar annast hann öll almenn þrif á bílum, allt frá þvotti og bóni og upp í mössun og lakkvörn sem heldur gljáa á bílnum í um ár og jafnvel lengur með reglulegu viðhaldi á vörninni.

Kristinn Arnar segir að mikil vinna sé lögð í bílaþrifin. Allt yfirborð og föls séu þrifin og efni borin á plast til að gera það svart og fái gljáa sem endist í nokkrar vikur. Þá séu bónefni í dag alltaf að verða betri og betri. Þau endist einnig lengur en algeng „bensínstöðvabón“.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Kristinn Arnar segist fyrst og fremst hafa verið að hugsa til almennings þegar hann stofnaði Stormbón, að geta boðið heimafólki upp á bílaþrif og góða þjónustu. Hann bjóðist til að sækja bíla fyrir þrif og skila þeim glansandi flottum til baka. Hann bjóði upp á að bílar séu settir í áskrift og séu þá teknir reglulega í þrif og bón og áskrifendur njóti ákveðinna kjara. Frí þrif að utan eftir fimm skipti og frí alþrif í tíunda skipti.

Einnig taki hann að sér að þrífa bíla fyrir fyrirtæki. Þannig fái hann t.a.m. núna bíla iðnaðarmanna um helgar og þrífi þá, þannig að menn hefji nýja vinnuviku á hreinum og fínum bílum.

Tímapantanir má bóka í símum 612 4847 eða 661 7589. Einnig má senda póst á [email protected].