Viðskipti

Jóhann Gunnar Jóhannsson ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
mánudaginn 19. ágúst 2019 kl. 10:03

Jóhann Gunnar Jóhannsson ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia

Jóhann Gunnar Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármálasviðs Isavia. Jóhann Gunnar starfaði áður sem framkvæmdastjóri fjármála- og mannauðssviðs hjá Ölgerðinni og tengdum félögum. Þar áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs og aðstoðarforstjóri Icelandic Group.  Fyrir þann tíma starfaði hann meðal annars hjá Bakkavör og Íslenskri erfðagreiningu sem forstöðumaður á fjármálasviði.

Jóhann Gunnar er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.  Jóhann Gunnar tekur við starfinu af Sveinbirni Indriðasyni sem var ráðinn forstjóri Isavia fyrr í sumar. Hann mun hefja störf hjá Isavia í september og taka þá jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024