Bláa lónið hefur lokið kaupum á Arctic Adventures
Bláa lónið hf. hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Arctic Adventures hf. Kaupverðið er greitt með 246.443.576 nýjum hlutum í Bláa lóninu. Arctic Adventures er þar með orðið hluti af samstæðu félagsins.
Bláa lónið áætlar að kaupin auki tekjur samstæðunnar um 99 milljónir evra árið 2027, úr 192 milljónum í 291 milljón evra. Það jafngildir 52 prósenta aukningu. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) er áætlaður 72 milljónir evra með kaupunum, samanborið við 49 milljónir evra án þeirra.
Bláa lónið gerir ráð fyrir að kaupin skili fimm milljóna evra árlegum sparnaði. Um helmingur þeirrar fjárhæðar er þegar reiknaður inn í afkomuspá ársins 2027.
Arctic Adventures býður upp á dagsferðir og lengri ferðir um Ísland, þar á meðal jöklaferðir, hellaferðir, norðurljósaferðir og gönguferðir. Meðal áfangastaða á vegum félagsins eru Fjaðrárgljúfur, Kerið og Raufarhólshellir.
Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa Lónsins segir að með kaupunum fái samstæðan fjölbreyttara ferðaframboð og aðgang að öflugu sölu- og dreifikerfi Arctic Adventures. Grímur Sæmundsen stjórnarformaður Bláa Lónsins bauð seljendur velkomna í hóp hluthafa.
„Við erum ánægð með að verða hluti af Bláa lóninu og hlökkum til að þróa ferðirnar og áfangastaðina áfram ásamt nýju samstarfsfólki okkar,“ segir Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventures.




