Framúrskarandi fyrirtæki 2025
Framúrskarandi fyrirtæki 2025

Viðskipti

Air Transat til Keflavíkur tvisvar í viku
Laugardagur 15. nóvember 2025 kl. 04:59

Air Transat til Keflavíkur tvisvar í viku

Kanadíska flugfélagið Air Transat hefur ákveðið að hefja flug til Íslands. Flogið verður á milli Montreal í Kanada og Keflavíkurflugvallar tvisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga, frá 17. júní á næsta ári til 28. september. Þetta er í fyrsta sinn sem Air Transat flýgur til Íslands.

Air Transat var stofnað árið 1986 og verður því fjörutíu ára á næsta ári. Það flýgur til um sextíu áfangastaða í tuttugu og fimm löndum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Montreal í Québec-fylki í Kanada.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

„Það er okkur mikið gleðiefni að bjóða Air Transat velkomið í hóp flugfélaga á Keflavíkurflugvelli,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli. „Með þessari nýju viðbót aukum við enn við framboð af flugrekendum hér á landi. Flugleið þeirra til Montreal styrkir tengsl Íslands og Kanada og endurspeglar bæði vaxandi aðdráttarafl Íslands sem áfangastaðar og styrk Keflavíkurflugvallar.“

Dubliner
Dubliner