Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Pistlar

Litla stúlkan með hnífapörin
Fimmtudagur 26. nóvember 2026 kl. 10:51

Litla stúlkan með hnífapörin

Eitt fagurt desemberkvöld sat ung stúlka fyrir framan spegilinn, setti stút á rauðar varirnar og brosti. Fram undan var fyrsta jólaboðið í nýju vinnunni hjá kærastanum og því mikilvægt að koma vel fyrir. Undirbúningurinn hafði gengið vonum framar. Liðirnir í hárinu höfðu aldrei heppnast jafn vel, gyllti augnskugginn tónaði fullkomlega við kjólinn og augnblýanturinn hafði runnið í fallega línu í fyrstu tilraun. Hvað gæti svo sem klikkað?

Þau stigu út úr bílnum við hótelið og gengu inn í fallegri snjókomu sem glitraði í jólaljósadýrðinni. Með fiðrildi í maganum tók hún í hendur nýju yfirmanna kærastans, kynnti sig kurteislega og kyssti konur þeirra á kinnarnar. Allt gekk eins og í sögu. Ekki leið á löngu þar til forrétturinn var borinn á borð, lax og laufabrauð. Hún tók sér hníf og gaffal en varð skyndilega litið í kringum sig. Allir við borðið héldu eins á hnífapörunum. Gafflarnir sneru öfugt.

Hún sem hafði alla tíð haldið á gafflinum með krepptum hnefa. Hvernig hafði þetta farið fram hjá henni öll þessi ár? Hún reyndi að bera sig virðulega og lét sem ekkert væri. Sem betur fer voru einhverjir þegar farnir að narta í matinn með höndunum svo hún gerði slíkt hið sama og slapp þar með fyrir horn. Ekki gat hún látið þetta fólk halda að hún væri algjörlega ósiðuð. Einhverra hluta vegna hafði það þó gleymst í uppeldinu að kenna henni að halda almennilega á hnífapörum. Ekki hafði skort lesturinn, mannasiðina eða annað sem prýða mátti unga stúlku. En einhvers staðar á leiðinni hafði þessi mikilvæga lexía fallið milli skips og bryggju.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Feginleikinn dugði þó skammt. Næst var borinn fram hamborgarhryggur með kartöflum og öllu tilheyrandi. Nú yrði hún að láta á þennan nýja hnífaparaleik reyna. Þetta gat nú ekki verið svo flókið. Hún sneri gafflinum við og hófst handa við að skera kjötið. En þar sem hana skorti margra ára æfingu gekk ekki betur en svo að kjötið rann af stað, þvert yfir diskinn, í gegnum sósuna og kartöflurnar, og endaði öll dýrðin beint framan á kjólnum. Eftir sat hún með hnífinn í annarri hendi, gaffalinn í hinni og tvær grænar baunir á diskinum.

Í bílnum á heimleiðinni sat hún í útötuðum kjólnum, með rauðkál í hárinu og sósu í skónum. Hún kveikti á útvarpinu. Lagið Aðfangadagskvöld hljómaði svo fallega og fékk hana til að gleyma óförum kvöldsins. Hún þyrfti nú kannski ekki að kunna allt í heiminum en þetta lag kunni hún þó og söng hástöfum með: „Þetta aðfangadagskvöld, fyrsta aðfangadagskvöld er eldvarnahátíðin mest, la la la la eldvarnahátíðin best.“

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100