Langbest þakkargj
Langbest þakkargj

Pistlar

Ágæt aflabrögð í nóvember
Sævík GK
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
fimmtudaginn 26. nóvember 2026 kl. 10:44

Ágæt aflabrögð í nóvember

Nú líður að því að mánuður númer ellefu, nóvember komi á enda. Og þessi mánuður er nú búinn að vera svo sem allt í lagi.

Og enn og aftur er veðurfarið eða veðurguðinn eitthvað að ruglast á tíma, því að það er bara búinn að vera hiti, í kringum 10 gráður, sem er vægast sagt furðulegt miðað við svona seint á árinu. Nú er ekki nema um mánuður í jólin og nú vantar þetta hvíta allhressilega.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Allavega hættum að spá í veðrinu. Mánuðurinn er búinn að vera ágætur aflalega séð, enn sem komið er eru aðeins þrír bátar á línu frá Suðurnesjum. Dúddi Gísla GK er búinn að vera allan mánuðinn í Grindavík og landað þar 43,4 tonnum í átta róðrum og mest 6 tonnum.

Margrét GK er í Sandgerði og hefur landað 72 tonnum í tólf róðrum og mest 7,7 tonnum, og Fjölnir GK er kominn til Sandgerðis, hefur landað þar 38,6 tonnum í fimm róðrum og mest 8,9 tonnum.

Hjá Fjölni GK er aflinn nokkuð blandaður en þó töluvert mikið af ýsu í aflanum, en hjá Margréti GK er meira um þorsk.

Dragnótaveiðar í Faxaflóa ganga vel. Aðalbjörg RE, sem hefur verið að landa bæði í Reykjavík og Njarðvík, er með 131 tonn í þrettán róðrum. Af þessum afla eru 43 tonn í Njarðvík í þremur róðrum, en báturinn landaði þar í byrjun nóvember en hefur síðan landað í Reykjavík. Stapafell SH hefur landað 60 tonnum í fimm róðrum í Njarðvík.

Í Sandgerði eru systurbátarnir Benni Sæm GK með 86 tonn í ellefu róðrum og mest 18 tonn og Siggi Bjarna GK með 100 tonn í tólf róðrum og mest 19 tonn.

Netaveiðin hefur lagast töluvert og eru ansi margir bátar komnir á þorskveiðar í net í Faxaflóa, nema Grímsi GK sem ennþá eltist við ufsann og gengur vel hjá honum núna, er kominn með 132 tonn í átta róðrum og mest 37 tonn í einni löndun.

Bátarnir sem eru á þorskveiðum eru Addi afi GK með 21 tonn í ellefu róðrum og mest 5,2 tonn. Sunna Líf GK 32 tonn í tólf róðrum og mest 5,1 tonn. Elley GK 16,7 tonn í þrettán róðrum og mest 2,7 tonn. Emma Rós KE 12,9 tonn í átta, en allir þessir bátar eru allir á vegum Hólmgríms, og síðan er Erling KE með 85 tonn í tíu róðrum og mest 22,3 tonn.

Nesfiskstogararnir eru að landa víða um landið. Pálína Þórunn GK var komin til Akureyrar og hefur landað alls 209 tonnum í þremur ferðum, en togarinn hefur verið að veiðum við Norðurlandið og landað á Akureyri og á Siglufirði. Sóley Sigurjóns GK er með 422 tonn í fjórum ferðum og mest 141 tonn, en togarinn hefur landað á Siglufirði og í Neskaupstað.

Hulda Björnsdóttir GK er komin með 432 tonn í þremur löndunum og mest 155 tonn, landað í Neskaupstað og í Grindavík.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100