Koma svo stelpur – Áfram Ísland!
Ég veit að ég er ekki sú eina sem er vandræðalega spennt fyrir Evrópumóti kvenna í fótbolta sem hefst eftir nokkra daga í Sviss. Ég hlakka svo til að fylgjast með íslensku stelpunum sem hafa sýnt það og sannað í undankeppninni að þær eiga fullt erindi meðal þeirra allra bestu. A riðillinn klár og erum við þar í góðum félagsskap með Sviss, Noregi og Finnlandi, hörku liðum. Fyrsti leikurinn verður á móti Finnlandi 2. júlí þannig að við ættum öll að vera búin að æfa „Húið“ okkar góða vel fyrir þann tíma.
Við munum öll eftir stemningunni 2016 þegar strákarnir fóru á EM, stuðningnum frá þjóðinni allri og það sem skiptir ekki síst máli, samheldninni, samstöðunni og jákvæðninni sem var hreinlega sprautað inn í þjóðarsálina. Við fjölskyldan vorum svo heppin að hafa akkúrat skipulagt (óháð EM) að vera í Frakklandi í sumarfríi á þessum tíma og náði ég að sjá þrjá leiki – þar á meðal hinn ógleymanlega sigur okkar á Englendingum. Og ekki bara það, að vera Íslendingur í Frakklandi á meðan á þessu stóð var ótrúlegt. Við lágum við sundlaugarbakkann daginn eftir Englandsleikinn og öll dagblöð sem Frakkarnir voru að lesa voru með heilsíðumynd af íslenska liðinu á forsíðunni og flennifyrirsögn um þennan mikla sigur. Yngri sonur okkar fór ekki úr landsliðsbúningnum allt fríið og var gripinn af rútufylli af kínverskum ferðamönnum í Cannes til að sitja fyrir á mynd með þeim – þar sem þau kölluðu með mikilli aðdáun „Bing Dao!!“ sem þýðir Ísland á kínversku.
Með allt sem er í gangi í heiminum, þá þurfum við á svona stemningu að halda. Við sem þjóð þurfum á svona stemningu að halda aftur og við þurfum hana akkúrat núna! Stelpurnar okkar þurfa á stuðningi okkar að halda og við skulum standa okkur. Ég er sannfærð um að þær munu standa sig – en ef við stöndum okkur sem stuðningsmenn þá gerast kraftaverkin. Og við Suðurnesjamenn eigum auðvitað okkar konur í liðinu, þær Sveindísi Jane, Ingibjörgu og Natöshu sem okkur ber sérstök skylda til að hvetja áfram.
Koma svo stelpur
– ÁFRAM ÍSLAND!!!