Bygg
Bygg

Pistlar

Júní mættur með brælu – bátar í Sandgerði þó komnir af stað
Föstudagur 6. júní 2025 kl. 09:24

Júní mættur með brælu – bátar í Sandgerði þó komnir af stað

Þá er enn einn mánuðurinn kominn í gang – júní mánuður. Hann byrjar með látum, því vitlaust veður hefur ríkt og spáin gerir ráð fyrir brælu fram eftir vikunni. Það þýðir að strandveiðibátarnir munu líklega lítið eða ekkert komast á sjó á næstu dögum.

Þrátt fyrir þetta voru fjórir handfærabátar sem fóru frá Sandgerði á fyrsta róðradegi strandveiða í júní. Tveir þeirra náðu skammtinum sínum – sem er vel af sér vikið, enda voru þeir komnir í ansi slæmt veður þegar þeir héldu til hafnar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Dóra Sæm HF landaði 125 kílóum í einni löndun.
Líf NS, sem ekki er á strandveiðum heldur á veiðum í röstinni, kom með 685 kíló.
Dímon GK og Arnar ÁR héldu báðir út í Faxaflóa og gekk þeim vel. Dímon GK landaði 783 kílóum og Arnar ÁR 1,03 tonni – þar af voru um 200 kíló ufsi.

Nokkrir bátar frá Grindavík voru einnig á sjó en aflatölur þeirra voru ekki komnar þegar pistillinn var skrifaður.


Ósk KE 5 komin aftur til Njarðvíkur – nú sem Hafdís SK 44

Í síðasta tölublaði Víkurfrétta var viðtal við Einar Magnússon, útgerðarmann og skipstjóra á Ósk KE. Ég hef áður skrifað um hann í þessum pistli, enda hefur hann átt marga báta í gegnum tíðina.

Einn þeirra var kínverskur bátur sem hét upphaflega Rúna RE. Hann keypti Einar snemma árs 2005 og nefndi hann Ósk KE 5. Báturinn var þó aðeins í hans eigu í rúmt eitt ár. Nú er hann aftur kominn til Njarðvíkur – en af allt öðrum ástæðum.

Eftir að Einar seldi bátinn fór hann til Ólafsvíkur og fékk nafnið Gunnar Bjarnason SH 122. Þar var hann í tæp 18 ár, þar til hann var seldur til FISK Seafood á Sauðárkróki í desember 2024. Fyrsta verkið hjá nýjum eigendum var að senda bátinn í slipp í Njarðvík, þar sem miklar breytingar voru gerðar: nýr þilfarskrani, ný ljósavél og ný aðalvél voru sett í bátinn.

Nýja nafnið er Hafdís SK 44, og hann er nú kominn á flot. Í Njarðvík liggur einnig annar bátur sem Einar átti – Maron GK, sem lengi hét Ósk KE 5 og á sér langa og áhugaverða sögu.


Vertíðaruppgjör nr. 8 – söguvertíðir á Suðurnesjum

Ég ætla að ljúka þessum pistli á örlítið öðrum nótum. Undanfarin tuttugu ár hef ég skrifað um vetrarvertíðir, og frá árinu 2017 hef ég gefið út það sem kallast Vertíðaruppgjör. Nú er komin út áttunda útgáfan, sem nær yfir vertíðirnar 2025, 1995 og 1975.

Suðurnesin koma sterkt inn í tvö þeirra ára. Árið 1995 voru tveir aflahæstu bátarnir á landinu frá Sandgerði:

  • Berg Vigfús GK, með skipstjórann Grétar Mar.

  • Stafnes KE, með Odd Sæmundsson við stjórnvölinn.

Svo er það árið 1975 – þá var Magnús Þórarinsson, faðir Einars Magnússonar, aflahæstur á Suðurnesjum. Hann réri frá Sandgerði og endaði ásamt áhöfn sinni á Bergþór KE sem aflahæsti báturinn á Íslandi það ár.


Loðna, togarar og 400 tonna bátar

Í uppgjörinu er farið yfir alla báta sem náðu yfir 400 tonna afla á þessum þremur vertíðum. Einnig eru teknir saman togarar sem réru öll þrjú árin og allir loðnubátar sem voru á sjó árin 1995 og 1975. Miklu magni loðnu var þá landað í Grindavík, Sandgerði, Helguvík og Keflavík – eftir því hvaða ár um ræðir.


Ritið komið út – 61 blaðsíða og sögulegur efniviður

Vertíðaruppgjörið 2025-1995-1975 er 61 blaðsíða að stærð og kostar 5.000 krónur. Ef lesendur hafa áhuga á að eignast eintak geta þeir haft samband við mig á Facebook (Gísli Reynisson) eða hringt í síma 774-3616 – sem er númerið hjá Hrefnu, konunni minni. Ég er sjálfur mikið að keyra rútur þessa dagana og get því ekki svarað meðan ég er á ferðinni.