Hár- og snyrtistofa Orkusystra
Hár- og snyrtistofa Orkusystra

Pistlar

Aflafréttir vikunnar
Föstudagur 20. júní 2025 kl. 08:25

Aflafréttir vikunnar

Þegar þessi pistill kemur þá er þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17.júní, kominn og það þýðir að strandveiðibátarnir eru allir í landi, en þeir mega ekki róa á hátíðisdögum.

Fyrir utan strandveiðibátana þá eru togarnir á veiðum, línubátarnir og dragnótabátarnir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Byrjum á dragnótabátunum sem landa hérna heima. Í Grindavík er Margrét GK komin með 44 tonn í 5 róðrum og mest tæp 20 tonn í einni löndun.

Stapafell SH er í Sandgerði og með 17 tonn í þremur róðrum, en báturinn er reyndar núna komin vestur til Bolungarvíkur. Aðalbjörg RE er líka í Sandgerði og er kominn með um 75 tonn í 7 róðrum, mest tæp 14 tonn.

Nesfisksbátarnir hafa verið fyrir austan á veiðum, eða á svipuðum slóðum og Sigurfari GK er búinn að vera á, við Vík í Mýrdal og þar austur með. Benni Sæm GK er kominn með 74 tonn í 6 róðrum. Sigurfari GK er kominn með um 120 tonn í þremur róðrum og mest 61 tonn, sem er fullfermi hjá honum. Siggi Bjarna GK er með 69 tonn í aðeins tveimur róðrum.

Allir þessir þrír bátar hafa landað í Þorlákshöfn, nema að seinni löndunin hjá Sigga Bjarna GK var í Sandgerði. Eftir þá löndun þá fór Siggi Bjarna GK til Njarðvíkur í slipp, en hann er að fara í þónokkuð miklar breytingar, því það á að taka úr bátnum ljósavél og aðalvél og setja nýjar vélar í staðinn. Ráðgert er að báturinn verði tilbúinn áður enn veiðar í Faxaflóanum, Bugtin hefjist 1. september.

Sóley Sigurjóns GK er á rækjuveiðum og kom til Grundarfjarðar með 61 tonn og af því var rækja um 35 tonn. Þar landaði líka Jóhanna Gísladóttir GK, en togarinn var kallaður inn af Vísi ehf í Grindavík því það vantaði fisk í vinnsluna, landaði Jóhanna Gísladóttir GK 42 tonnum þar sem var ekið til vinnslu í Grindavík. Togarinn hafði landað í Grindavík 61 tonni.

Fjölnir GK er eini línubáturinn af minni gerðinni sem er að róa frá Suðurnesjunum, og hefur hann að mestu verið að eltast við löngu og keilu, og gengið nokkuð vel, landað 66 tonnum í 5 róðrum og mest 18,3 tonn í einni löndun.

Tveir bátar frá Einhamri eru á Stöðvarfirði, Vésteinn GK sem er kominn með 44 tonn í fimm róðrum og Gísli Súrsson GK sem er kominn með 31 tonní þremur. Reyndar þurfti að sigla Gísla Súrssyni GK til Reyðarfjarðar og þar var báturinn hífður á land, en leki hafði komið upp í hliðarskúfunni að framan, tók um 3 klukkustundir að rífa skrúfuna og öxulinn úr, og síðan laga lekann.