RNB þrettándinn
RNB þrettándinn

Mannlíf

 Þrumandi þrettándagleði í Reykjanesbæ!
Fimmtudagur 1. janúar 2026 kl. 10:54

Þrumandi þrettándagleði í Reykjanesbæ!

Árleg þrettándagleði verður haldin í Reykjanesbæ þriðjudaginn 6. janúar 2026 og hefst blysför kl. 18:00 frá Myllubakkaskóla. Bæjarbúar eru hvattir til að fjölmenna og eiga saman skemmtilega fjölskyldustund með púkum, álfum, Grýlu, jólasveinum og ýmsum öðrum kynjaverum.
Luktarsmiðja í Myllubakkaskóla

Áður en dagskrá hefst, frá kl. 16:30 -17:45, verður boðið upp á skemmtilega luktarsmiðju í matsal Myllubakkaskóla. Fólk tekur með sér krukku að heiman sem hægt verður að breyta í fallega lukt til að taka með sér í blysförina. Allt efni og ljós fæst á staðnum en einnig er hægt að kaupa krukku ef þörf er á. Verð fyrir efni og kerti kr. 500 og verð fyrir krukku kr. 500. Hægt verður að greiða með peningum eða millifærslu á staðnum. Gengið er inn um inngang við Suðurtún eða inn frá skólalóð að aftan. Allir velkomnir.

Blysför að hátíðarsvæði

Klukkan 18:00 verður gengið í fylgd álfakóngs og drottningar og hirðar þeirra frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði við Hafnargötu 12. Á hátíðarsvæðinu verður það sjálf Grýla gamla sem tekur á móti hersingunni, álfar munu hefja upp raust sína og syngja þrettándasöngva og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
Brenna, kakó og piparkökur

Þrettándabrennan verður á sínum stað við Ægisgötu og gestum verður boðið upp á heitt kakó og piparkökur til að ylja sér.

Flugeldasýning Björgunarsveitarinnar Suðurnes

Jólin verða svo kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu eins og þeirra er háttur.

Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið Heiðabúar, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit og trommusveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar taka þátt í dagskránni.

Bílastæði eru við Ægisgötu og Ráðhús, Tjarnargötu 12.

RNB þrettándinn
RNB þrettándinn