Mannlíf

Stórsýningin „Bless í bili“ í Andrews Theatre
Föstudagur 7. ágúst 2026 kl. 06:36

Stórsýningin „Bless í bili“ í Andrews Theatre

Aron Gauti og Guðmundur Daníel leiða stjörnuprýddan hóp

Miðvikudagskvöldið 19. ágúst 2026 verður boðið upp á mikla söngleikjaveislu í Andrews Theatre á Ásbrú þegar tónleikasýningin „Bless í bili“ verður haldin í þriðja sinn.

Sýningin er um tveggja klukkustunda langur og fjörugur söngleikja- og tónleikaviðburður sem ætlaður er öllum aldurshópum. Hún höfðar jafnt til harðsvíraðra söngleikjaunnenda, tónlistaráhugafólks og þeirra sem vilja einfaldlega njóta skemmtilegrar kvöldstundar í góðra vina hópi.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Líkt og undanfarin ár eru það leikarinn Aron Gauti Kristinsson og tónlistarmaðurinn Guðmundur Daníel Erlendsson sem stýra ferðinni ásamt 12 manna hljómsveitinni Verðum í bandi. Fram koma nokkur af þekktustu nöfnum íslensks leik- og tónlistarlífs, en á meðal þeirra sem stíga á svið eru Bjarni Snæbjörnsson, Diljá Pétursdóttir, Elma Rún Kristinsdóttir og Viktoría Sigurðardóttir, ásamt fleiri góðum gestum.

Vegna mikillar aðsóknar á fyrri sýningar er fólk hvatt til að tryggja sér miða í tíma, en miðasala er þegar hafin á Tix.is.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100