Mannlíf

RHB og Fríða Dís í Hljómahöll á fimmtudagskvöld
Fimmtudagur 15. febrúar 2024 kl. 09:52

RHB og Fríða Dís í Hljómahöll á fimmtudagskvöld

Rolf Hausbentner Band (RHB) og Fríða Dís leiða saman hesta sína í tónleikum í Hljómahöll í Njarðvík fimmtudaginn 15. febrúar 2024. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00 og er hægt að tryggja sér miða á hljomaholl.is eða á tix.is. 

Rolf Hausbentner Band

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Rolf Hausbentner Band (RHB) er kröftug rokkhljómsveit sem var stofnuð árið 2020 og spilar tónlist sem er drifin áfram af grípandi riffum og þungum takti. Hljómsveitin hefur gefið út 5 lög sem hafa verið í spilun bæði á Rás og og Xinu. Lagið Set Me Free, sem hljómsveitin gerði með Fríðu Dís, sat í nokkrar vikur á vinsældarlista Rásar 2 og lagið Touch Our Ground var á lista yfir bestu rokklög ársins 2023 í rokkþættinum Füzz á Rás 2. RHB vinnur nú að sinni fyrstu heilu plötu.  

Í Hljómahöllinni verða þau Pálmar Guðmundsson, Ólafur Ingólfsson, Smári Guðmundsson, Hlynur Þór Valsson, Ólafur Þór Ólafsson og Birta Rós Sigurjónsdóttir sem skipa RHB. Að auki verða Fríða Dís og Grétar Lárus Matthíasson sérstakir gestir í nokkrum lögum.

Fríða Dís 

Fríða Dís hefur starfað sem tónlistarmaður frá unglingsaldri, aðallega sem söngkona og texta- og lagasmiður með Klassart, Eldum og Trilogiu. Árið 2020 hóf hún sólóferil og hefur síðan þá gefið út þrjár plötur hjá útgáfufyrirtækinu Smástirni; MyndaalbúmLipstick On og Fall River. Platan Lipstick On hlaut tilnefningu til Kraumsverðlaunanna 2022 og í plötugagnrýni í Morgunblaðinu sama ár skrifar Arnar Eggert Thoroddsen: „[…] virkilega vel heppnað verk. Með því betra sem ég hef heyrt á þessu ári“. Fríða hefur þar að auki tekið þátt í fjölda verkefna með ýmsu tónlistarfólki, t.d. Soffíu Björgu, Íkorna, Ingu Björk, Baggalúti og Jónasi Sig og verið iðin við tónleikahald. Fríða Dís vinnur nú að sinni fjórðu breiðskífu sem er væntanleg seinna á árinu. Með henni á sviðinu í Hljómahöll verða þau Smári Guðmundsson, Halldór Lárusson og Soffia Björg.