Nærmnd: Málar hús, leigir bíla og gerir „danskt smørrebrød“ á Spáni
Nafn: Einar Lárus Ragnarsson
Árgangur: 1956
Búseta: Almoradí, Alicante, Spánn
Hverra manna ertu og hvar uppalinn? Foreldrar eru Ragnar F. Jónsson og María Einarsdóttir.
Fyrstu 9 árin á Holtsgötu 34, Ytri-Njarðvík, og síðan í Keflavík, Krossholt 2.
Starf/nám: Gagnfræðaskólinn og síðan vinna í Fríhöfninni og lengst af í Húsasmiðjunni í rúm 22 ár. Ég er með sjálfstæðan rekstur á Spáni þar sem ég geri „danskt smørrebrød“, mála hús og leigi út bíla.
Hvað er í deiglunni? Nú lenti ég í því skemmtilega verkefni að fá að taka þátt í að koma Húsasmiðjunni á Fitjum aftur í plássið sem hún var í frá 2008 til 2015 og er það virkilega gaman. Ný/gömul, æðisleg Húsasmiðja og skora ég á alla Suðurnesjamenn að kíkja við og sjá breytinguna. Ég verð út febrúar en þá förum við hjónin í ferðalag til Víetnam og Kína og dveljum svo í Tælandi í nokkrar vikur.
Hvernig nemandi varstu? Ég var fínn nemandi framan af en verð að viðurkenna að breyting varð á þegar ég var kominn í stjórn nemendafélagsins og síðar formaður þar sem kennslustundum fækkaði og meiri tími fór í félagsstarfið.
Hvað er eftirminnilegast frá fermingardeginum? Að það voru svo margir ættingjar sem ég hafði ekki séð svo mikið af og að fá flott úr og sambyggða Sharp hljómtækjasamstæðu frá mömmu og pabba.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór? Mig langaði að verða kokkur og fór í matreiðsluskólann. Ég var búinn að kaupa íbúð og það gekk ekki að vera launalaus nemi þannig að maður þurfti að hætta og fara að vinna.
Áttu einhverja sérstaka fyrirmynd? Pabbi var alltaf flottastur.
Hvert var uppáhalds leikfangið þitt þegar þú varst krakki? Ég fékk bangsa frá Sigga (sjónvarps) frænda þegar ég var 6 mánaða og hann sefur enn uppi í rúmi hjá mér. En ameríska stóra þríhjólið sem ég fékk 7 ára var flottast.
Besti ilmurinn? Það eru eiginlega tveir sem mér þykja bestir, kanill og kókos.
Á hvernig bíl lærðir þú fyrir bílprófið? Mig minnir að það hafi verið á Opel sem Sigurður aðstoðarskólastjóri var á.
Á hvaða bíl fórstu fyrsta rúntinn eftir prófið og með hverjum? Rauð tveggja dyra Ford Cortína sem pabbi hafði keypt fyrir mig án þess að ég vissi og afhenti mér á afmælisdaginn og sagði að ég þyrfti bara að borga honum til baka með vaxtalausum mánaðargreiðslum í eitt ár, sem ég og gerði. Vinir mínir Grétar Óli, Heiðar Óli og Lára Brynjars fengu fyrsta rúntinn sem var alla nóttina.
Hvernig slakarðu á? Síðustu ár hefur mér þótt gott að setjast niður með bók og er t.d. búinn að lesa allar bækurnar hennar Evu Bjargar Ægisdóttur.
Hverju missirðu helst ekki af í sjónvarpinu? Ég horfi lítið á sjónvarp en það voru fréttirnar en núna fer ég bara mest á netið.
Uppáhalds vefsíðan? YouTube.com en nú er það bara appið.
Hvað heldurðu að skjátími þinn sé mikill á hverjum degi að jafnaði? Það eru um þrír tímar á dag enda er ég meira að horfa á skjáinn en sjónvarpið.
Besta bíómyndin? Ég kýs að velja frekar myndir sem eru minnisstæðastar þegar ég sá þá fyrst og snertu við mér. Seven og Matrix.
Hvaða íþróttamanni hefurðu mestar mætur á? Zlatan Ibrahimović.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á þínu heimili? Ég mála herbergin.
Hvert er snilldarverkið þitt í eldhúsinu? Að elda kótilettur í ostasósu
Hættulegasta helgarnammið? Rommkúlur og Pepsi Max.
Hvernig er eggið best? Með rækjum, majónesi, sítrónu, tómat, gúrku og svörtum kavíar á dönsku rúgbrauði. En réttara svar er sennilega: steikt báðum megin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Það er rosalega fátt sem fer í taugarnar á mér. Ég hugsaði lengi svar við þessari en fann ekkert í augnablikinu.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Hroki og rasismi.
Uppáhaldsmálsháttur eða tilvitnun? Betra er autt rúm en illa skipað.
Hver er elsta minningin sem þú átt? Þegar 13 jólasveinar lágu á glugganum heima á Holtsgötunni uppi á annarri hæð þegar ég var fimm ára og ég þorði ekki að kalla á mömmu og pabba.
Þú vaknar einn morgun í líkama frægrar manneskju og þarft að dúsa þar einn dag. Hver værirðu til í að vera og hvað myndirðu gera? Donald Trump og snúa öllu við sem hann hefur framkvæmt.
Hver er uppáhaldsbókin þín og rithöfundurinn? Pappillon eftir Henri Charrière.
Orð eða frasi sem þú notar mikið? Ég nota nokkuð oft orðið geggjað.
Hvaða þremur persónum vildirðu bjóða í draumakvöldverð? Keanu Reeves, Richard Gere og Buddah.
Ef þú gætir farið til baka í tímann, hvert færir þú? Til ársins 542 f.k.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? Lífið er aðeins dagurinn í dag og dagurinn á morgun ekki til.



