Mannlíf

Myndband við jólalag Más og Ladda
Föstudagur 1. desember 2023 kl. 12:42

Myndband við jólalag Más og Ladda

Myndband við jólalagið Mér finnst ég bara eiga það skilið sem félagarnir Már Gunnarsson og Þórhallur Sigurðsson (Laddi) flytja er komið út.

Á YouTube-rás Más segir hann að lagið fjalli um að þó lífið sé stundum erfitt þá megi alltaf líta á björtu hliðarnar og gera sér glaðan dag. Við eigum öll skilið að komast í hátíðarskap um jólin. Hvað er betra en að lyfta sér upp og splæsa í smá fínheit?

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Flytjendur lagsins eru Már og Laddi en lagið samdi Már við texta Tómasar Eyjólfssonar. Upptökur á hljóðfæraleik og söng auk hljóðblöndunar fór fram á Íslandi auk þess sem strengjasveit í Royal Northern College of Music í Manchester tók þátt í verkefninu. Mastering fór fram í Póllandi.

Myndbandið má sjá í spilaranum hér að neðan.