Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Mannlíf

Fjölbreytt þjóðhátíðardagskrá á 17. júní í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 16. júní 2021 kl. 07:52

Fjölbreytt þjóðhátíðardagskrá á 17. júní í Reykjanesbæ

Þjóðhátíðardagur Íslendinga verður haldinn hátíðlegur í Reykjanesbæ með nokkuð óhefðbundnu sniði í ár vegna þeirra fjöldatakmarkana sem enn eru í gildi.

Dagskráin hefst þó að vanda með hátíðardagskrá í Skrúðgarðinum í Keflavík. Vakin er athygli á breyttri tímasetningu en dagskrá hefst klukkan 11:00 svo hún renni ekki saman við skemmtidagskrá. Fólk er velkomið að mæta í Skrúðgarðinn en dagskránni verður einnig streymt í gegnum Facebook-síðu Víkurfrétta. Í skrúðgarðinn marsera skátar með hátíðarfánann undir lúðrablæstri  lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Óskar Ívarsson, starfsmaður Umhverfismiðstöðvar, dregur þjóðfánann að húni og Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, flytur honum þakkarorð. Við þetta tilefni flytur Karlakór Keflavíkur þjóðsönginn. Setningarræða dagsins er í höndum Guðbrands Einarssonar, forseta bæjarstjórnar, og ræðu dagsins flytur Ingvar Eyfjörð, framkvæmdarstjóri Aðaltorgs. María Tinna Hauksdóttir, nýstúdent og dúx Fjölbrautaskóla Suðurnesja, verður í hlutverki fjallkonu og flytur ættjarðarljóð.

Public deli
Public deli

Skemmtidagskrá á fjórum stöðum

Það er mikið gleðiefni að í ár verður kleift, þrátt fyrir takmarkanir, að bjóða upp á skemmtidagskrá fyrir yngstu kynslóðina. Í stað þess að hún sé á einum stað eins og vant er verður boðið upp á fjórar staðsetningar, í tveimur stærstu bæjarhlutum Reykjanesbæjar, í samstarfi við öflug félagasamtök sem hafa tekið að sér að stýra dagskrá á hverjum stað. Þessi félög eru fimleikadeild Keflavíkur, taekwondodeild Keflavíkur, unglingaráð Fjörheima og unglingaráð körfuknattleiksdeildar UMFN. Dagskrá á hverjum stað verður sambærileg og stendur yfir frá klukkan 13 til 16 og því á ekki að skipta máli á hvaða stöð er farið eða klukkan hvað. Meðal þess sem boðið verður upp á á hverjum stað eru hoppukastali, tónlist, 17. júní ratleikur, -fígúrur frá Leikfélagi Keflavíkur og ýmsir leikir og skemmtistöðvar. Staðsetning skemmtistöðva eru við leikskólann Holt í Innri-Njarðvík, Skrúðgarðinum í Njarðvík við Ytri-Njarðvíkurkirkju, Skrúðgarðinum í Keflavík og við Heiðarskóla.

Fjörheimar og Vatnaveröld

Opið verður í sundmiðstöðinni á þjóðhátíðardaginn þar sem  einnig verður boðið upp á sérstakt sundlaugarpartý. Um kvöldið er svo boðið upp á pylsur í Fjörheimum og kvölddagskrá fyrir ungmenni með fjölbreyttri dagskrá þar sem Sprite Zero Klan verður rúsínan í pylsuendanum.

Aðrir viðburðir

Margt fleira verður til skemmtunar á 17. júní. Boðið verður upp á kaffihlaðborð á nokkrum stöðum, fjölskyldubingó í íþróttahúsi Njarðvíkurskóla auk þess sem ókeypis aðgangur er í söfnin en glænýjar sumarsýningar eru nýopnaðar í boði í Duus Safnahúsum sem allir eru hvattir til að skoða.

Höldum daginn hátíðlegan og virðum fjöldatakmarkanir

Við hvetjum bæjarbúa til að halda daginn hátíðlegan í sínu hverfi, skreyta og flagga og ganga síðan, hjóla eða aka, eftir aðstæðum, á hátíðarsvæðið næst heimili sínu.

Vegna fjöldatakmarkana biðjum við foreldra og forráðamenn um að setja börnin í forgang og leyfa þeim að njóta hátíðarhaldanna, segir í tilkynningu frá Reykjanesbæ, segir í frétt frá Reykjanesbæ.