Íþróttir

Zeba í Grindavík næstu þrjú árin
Föstudagur 11. október 2019 kl. 08:52

Zeba í Grindavík næstu þrjú árin

Josip Zeba hefur skrifað undir þriggja ára samning við knattspyrnudeild Grindavíkur. Zeba, eins og flestir vilja kalla hann, var hluti af mjög sterkri vörn Grindavíkur á ný afstöðnu tímabili í Pepsi deildinni.

„Það er ósennilegt að það sé hægt að finna lið í flestum, ef ekki öllum deildum heims, sem fær á sig næst fæstu mörkin í deildinni en falla samt niður um deild en það var jú hlutskipti okkar þetta ár. Það er því ljúft fyrir okkur að tryggja okkur samning við þennan sterka varnarmann næstu þrjú árin,“ segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild Grindavíkur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024