Sundfólk ÍRB áfram að gera góða hluti á smáþjóðaleikunum í Andorra
Eva Margrét Falsdóttir vann til bronsverðlauna í 200m bringusundi og var alveg við sinn besta tíma, og Guðmundur Leo Rafnsson vann einnig til bronsverðlauna í 100m baksundi á sínum besta tíma.
Þau voru síðan bæði í boðsundsveitum Íslands í 4 x 200m skriðsundi. Þar fóru þau bæði fyrsta sprett í sveitunum og bættu þau bæði sína fyrri tíma í greininni.
Kvennasveitin vann til gullverðlauna og karlasveitin til bronsverðlauna í þessum sundum. Lokadagur mótsins er á morgun.



