Íþróttir

Sigurður Ragnar yfirmaður knattspyrnumála hjá Keflavík
Sigurður Ragnar hefur verið ráðinn í nýja stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá knattspyrnudeild Keflavíkur.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 16. desember 2020 kl. 08:16

Sigurður Ragnar yfirmaður knattspyrnumála hjá Keflavík

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur ráðið Sigurð Ragnar Eyjólfsson sem yfirmann knattspyrmála hjá félaginu. Siggi Raggi mun samhliða þessu starfi vera áfram annar af tveimur aðalþjálfurum meistaraflokks karla ásamt Eysteini Húna Haukssyni en liðið tryggði sér sæti í efstu deild karla á nýafstöðnu tímabili.

Í tilkynningu frá knattspyrnudeild Keflavíkur segir: „Starf yfirmanns knattspyrnumála er viðbót við umgjörð Keflavíkur sem miðar að því að byggja upp sterkari leikmenn og öflugri einstaklinga og er markmiðið að með ráðningunni verði allt faglegt starf innan félagsins samþætt frá yngsta aldursflokki að meistaraflokki. Sigurður mun starfa náið með framkvæmdastjóra félagsins, þjálfarateymi yngri flokkanna, barna- og unglingaráði auk kvennaráðs og stjórnar.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Sigurður Garðarsson formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur segir það mikinn feng fyrir Keflavík að fá Sigga Ragga í fullt starf hjá félaginu. Hann hafi mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari, bæði heima og erlendis, auk þess sem hann starfaði í tólf ár sem fræðslustjóri KSÍ. „Keflavík hefur sýnt það síðustu ár að með því að horfa inn á við og vinna í því að byggja upp starfið markvisst má ná meiri árangri. Í bæði karla- og kvennaliðunum okkar er stór hluti af uppöldum ungum leikmönnum sem hafa þroskast mikið á síðustu árum og munu bæði spila á meðal þeirra bestu á nýju ári. Með komu Sigga Ragga viljum við bæta enn frekar í þessa stefnu og horfa heildstætt á knattspyrnuna í Keflavík frá yngsta stigi að því efsta. Í starfinu viljum við búa til góða knattspyrnumenn og ekki síður góða einstaklinga sem þroskast hjá félaginu sem einstaklingar og ekki síður sem félagsmenn.“

Sigurður Ragnar og Eysteinn Húni hafa náð vel saman í brúnni hjá Keflavík.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson: „Keflavík er eitt af stóru félögunum í knattspyrnu á Íslandi og ég er mjög spenntur fyrir því að taka við þessu starfi og aðstoða Keflavík við að ná sínum markmiðum. Umgjörðin í kringum félagið er mjög góð og ég mun vinna í að finna leiðir til að gera gott starf enn betra, fá fólk í lið með mér til að efla faglegt starf félagsins og vinna að því að þjálfun og þróun leikmanna verði ennþá betri. Ég er sannfærður um að við getum tekið félagið á næsta stig. Við viljum vera með öflug lið og leikmenn og festa okkur í sessi sem félag í efstu deild. Hjá Keflavík er mikið af öflugu og hæfu fólki og ég hlakka mikið til að vinna með því .“

Sigga Ragga þarf ekki að kynna fyrir knattspyrnuáhugamönnum. Hann lék við góðan orðstír knattspyrnu bæði hér heima og erlendis auk þess sem hann þjálf­aði A-landslið kvenna frá 2007 til 2013 og komst liðið í tvígang í úr­slita­keppni Evr­ópu­móts­ins und­ir hans stjórn. Hann var þjálf­ari karlaliðs ÍBV, aðstoðarþjálf­ari hjá norska liðinu Lilleström í úrvaldeild karla í Noregi, gerði kín­verska kvennaliðið Jiangsu Sun­ing að bikarmeisturum í Kína og var síðan þjálf­ari A-landsliðs kvenna hjá Kína þar sem hann vann bronsverðlaun í Asíukeppninni og kom liðinu í lokakeppni HM. Hann er með UEFA PRO þjálfaragráðu frá enska knattspyrnusambandinu. Siggi Raggi er íþróttafræðingur að mennt og hefur lokið við mastersgráðu í íþróttasálfræði frá University of North Carolina at Greensboro.