Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Rausnarleg gjöf til Grindvíkinga
Sandra Antonsdóttir frá Einhamar Seafood afhendir UMFG bifreiðina.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 19. mars 2021 kl. 11:16

Rausnarleg gjöf til Grindvíkinga

Sjávarútvegsfyrirtækið Einhamar færir UMFG rútu að gjöf

Ungmennafélag Grindavíkur fékk sannarlega frábæra gjöf þegar forsvarsfólk sjávarútvegsfyrirtækisins Einhamars Seafood færði félaginu að gjöf tuttugu og tveggja manna Mercedes-rútu sem hefur verið merkt UMFG.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Um er að ræða frábæra gjöf sem mun nýtast öllu félaginu vel í keppnisferðir á vegum þess. Rútan hefur verið í eigu Einhamars í nokkur ár og stóð til að skipta henni út og selja. Þess í stað ákváðu stjórnendur Einhamars að taka rútuna í gegn, lagfæra og færa Ungmennafélaginu að gjöf. Rútan, sem er af gerðinni Mercedes Sprinter, kemur því nánast sem ný til félagsins.

Rútan var formlega afhent í síðustu viku og voru þau Rakel Lind Hrafnsdóttir, frá körfuknattleiksdeild UMFG, og Gunnar Már Gunnarsson, frá knattspyrnudeild UMFG, sem tóku við rútunni frá Söndru Antonsdóttur, einum eigenda Einhamars.

„Við þökkum ótrúlegan hlýhug frá Einhamar Seafood í garð félagsins. Það hefur lengi verið draumur félagsins að eignast svona rútu til að geta farið sem ein heild í keppnisferðir út á land, hvort sem það eru meistaraflokkar félagsins eða fyrir yngri flokka. Rútan mun standa öllum deildum félagsins til boða og ætti að lækka ferðakostnað félagsins verulega þegar fram líða stundir,“ sagði Bjarni Már Svavarsson, formaður UMFG, við þetta tilefni

„Aðalstjórn Ungmennafélags Grindavíkur, vill koma á framfæri kærum þökkum til Einhamars Seafood fyrir þessa ótrúlegu gjöf sem við vonum svo sannarlega að muni nýtast mörgum ungum Grindvíkingum um ókomin ár. Svona gjöf gefur félagið byr undir báða vængi til að gera gott starf enn betra,“ segir á vef UMFG.

„Það verður engin rúta heldur langferðabifreið!“

sögðu Stuðmenn í kvikmyndinni Með allt á hreinu hér um árið. Það sama má segja um þessa glæsibifreið sem Grindvíkum var færð að gjöf og mun hún án efa nýtast félaginu vel á keppnisferðum þess um landið vítt og breitt.