Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Íþróttir

Njarðvíkurstúlkur Íslandsmeistarar í 12. flokki
Íslandsmeistarar Njarðvíkur. Myndir frá kki.is
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 14. febrúar 2026 kl. 09:18

Njarðvíkurstúlkur Íslandsmeistarar í 12. flokki

Njarðvík varð bikarmeistari í 12. flokki kvenna eftir sigur á Val í æsispennandi leik þar sem Helga Jara Bjarnadóttir skoraði sigurstig Njarðvíkinga þegar 12 sekúndur voru til leiksloka.

Valsstúlkur byrjuðu betur í fyrsta leikhluta og leiddu eftir hann 16-22. Njarðvíkingar svöruðu fyrir sig og unnu annan leikhluta með átta stigum og leiddu í hálfleik með tveimur, 41-39.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Þær juku forskotið í þriðja leikhluta um sjö stig en Valsstúlkur gáfust ekki upp og náðu að minnka muninn og jafna leikinn á síðustu mínútunni eða þegar 34 sekúndur voru til leiksloka. Það var mikil barátta tímann sem eftir lifði en sigurstig Helgu, 12 sekúndur fyrir leikslok tryggðu Njarðvík sigur.

Hulda María Agnarsdóttir var í forystu hlutverki og skoraði 30 stig fyrir UMFN, tók 4 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Sara Björk Logadóttir var líka mjög öflug og skoraði 21 stig en þær eru báðar í stórum hlutverkum í meistaraflokksliði Njarðvíkur. Þá skoraði Helga Jara tólf stig og sigurkörfuna eins og fyrr greinir.

Hjá Valsstúlkum eru tvær Suðurnesjadömur og þær eru tvær af lykilleikmönnum liðsins, þær Ásdís Elva Jónsdóttir en hún skoraði 28 stig, þar af sjö þrista, og Hanna Gróa Halldórsdóttir sem skoraði 6 stig, tók 9 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.

Hulda María Agnarsdóttir skoraði 30 stig fyrir UMFN.

Helga Jara skoraði sigurkörfu UMFN á lokasekúndunum.

Ásdís Elva Jónsdóttir skoraði 28 stig fyrir Val í þessum spennuleik.

Hanna Gróa Halldórsdóttir skoraði 6 stig, tók 9 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.