Slakt hjá Grindavíkurkonum en Njarðvík vann í spennuleik
Njarðvík vann en Grindvík tapaði stórt á heimavelli í sautjándu umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Njarðvík er áfram á toppnum en Grindavík hefur færst niður stigatöfluna að undanförnu.
Njarðvík fékk hörku mótspyrnu hjá nýliðum Ármanns en gestirnir leiddu í hálfleik með átta stigum og bættu öðrum átta við í þriðja leikhluta. Það benti því allt til sigurs nýliða Ármanns og þegar tæpar fjórar mínútur voru til leiksloka leiddu gestirnir með 15 stigum. Heimakonur í Njarðvík voru ekki alveg á því a játa sig sigraðar en þær voru sex stigum undirþegar hálf mínúta var til leiksloka. Brittany Dinkins, besta körfuboltakona deildarinarr að flestra mati, jafnaði leikinn með tveimur þristum á síðustu hálfu mínútunni.
Því þurfti að framlengja og þá var allt púðrið úr Ármannskonum og þær þurftu að játa sig sigraðar 85-73.
Brittany Dikins fór mikinn með UMFN og skoraði 36 stig og tók 9 fráköst. Danielle Rodriguez skoraði 25 stig og tók 11 fráköst. Þær tvær skoruðu 61 stig af 85 stigum UMFN í leiknum.
Njarðvík-Ármann 85-73 (12-19, 13-14, 7-15, 35-19, 18-6)
Njarðvík: Brittany Dinkins 36/9 fráköst, Danielle Victoria Rodriguez 25/11 fráköst/7 stoðsendingar, Helena Rafnsdóttir 12/12 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 6, Sofia Roma 3/14 fráköst, Alexandra Eva Sverrisdóttir 2, Inga Lea Ingadóttir 1, Veiga Dís Halldórsdóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0, Aníta Rut Helgadóttir 0, Hulda María Agnarsdóttir 0, Sara Björk Logadóttir 0.
Ármann: Kylie Savannah Kornegay-Lucas 18/12 fráköst/3 varin skot, Dzana Crnac 16, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 15/16 fráköst, Nabaweeyah Ayomide McGill 12/9 fráköst/3 varin skot, Ragnheiður Björk Einarsdóttir 7, Jónína Þórdís Karlsdóttir 5/5 fráköst/8 stoðsendingar, Ísabella Lena Borgarsdóttir 0, Auður Hreinsdóttir 0, Aníka Linda Hjálmarsdóttir 0, Rakel Sif Grétarsdóttir 0, Cirkeline Sofie Mehrenst Rimdal 0.
Dómarar: Jón Þór Eyþórsson, Ingi Björn Jónsson, Jón Svan Sverrisson
Áhorfendur: 200
Grindavíkurkonur náðu ekki að rífa sig í gang eftir bikartapið gegn Keflavík og töpuðu stórt á heimavelli gegn Val, 66-89.
Valskonur mættu mjög einbeittar og mættu með látum. Þær leiddu með 21 stigi í hálfleik.
Grindvíkingar náðu sér aldrei í gang og urðu að játa sig sigraðar með 23 stiga mun, 66-89.
Abby C. Beeman reyndi allt hvað hún gat en náði ekki að virkja félaga sína en hún skoraði 25 stig og tók 9 fráköst.
Grindavík-Valur 66-89 (15-29, 16-23, 23-21, 12-16)
Grindavík: Abby Claire Beeman 25/9 fráköst/8 stoðsendingar, Farhiya Abdi 14/5 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 12/11 fráköst, Emilie Sofie Hesseldal 8/11 fráköst, Ólöf María Bergvinsdóttir 5, Þórey Tea Þorleifsdóttir 2, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0.
Valur: Alyssa Marie Cerino 22/10 fráköst, Reshawna Rosie Stone 19/5 fráköst/9 stoðsendingar, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 15, Sara Líf Boama 14/8 fráköst, Guðbjörg Sverrisdóttir 9/4 fráköst, Þóranna Kika Hodge-Carr 8/7 fráköst, Ásta Júlía Grímsdóttir 2, Berta María Þorkelsdóttir 0, Ásdís Elva Jónsdóttir 0, Hanna Gróa Halldórsdóttir 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Kristján Hreiðarsson, Einar Valur Gunnarsson
Áhorfendur: 95





