ReykjanesOptikk
ReykjanesOptikk

Íþróttir

Erfið lending hjá bikarmeisturunum í Vesturbænum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 11. febrúar 2026 kl. 10:30

Erfið lending hjá bikarmeisturunum í Vesturbænum

Það var erfið lending hjá Keflavíkurkonum eftir bikarsigur þegar þær mættu KR í Bónus deildinni í körfubolta í Vesturbænum í gær. KR vann öruggan átján stiga sigur, 97-79.

Leikurinn var þó jafn í fyrsta leikhluta en nýkrýndir bikarmeistarar virtust ætla að taka þetta því Keflavík náði ellefu stiga forskoti þegar flautað var til leikhlés, 49-61.

En þá var eins og bensínið væri búið á tanknum hjá bítlabæjardömum því heimakonur í KR unnu næstu tvo leikhluta með 28 stiga mun. Hreint ótrúlegt hvernig leikur bikarmeistaranna hrundi í síðari hálfleik.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Tvíburasysturnar Sara Rún og Bríet skoruðu mest hjá Keflavík, 16 og 14 stig og Keishana Washington náði sér ekki á strik og skoraði bara 13 stig. Keflavík er í 6. sæti deildarinnar með 18 stig.

Hin Suðurnesjaliðin eiga leik í kvöld, Grindavík fær Val í heimsókn og Njarðvík fær nýliða Ármanns.

KR-Keflavík 97-79 (25-24, 16-27, 25-12, 31-16)

KR: Molly Kaiser 34, Eve Braslis 23/12 fráköst, Jiselle Elizabeth Valentine Thomas 17/8 fráköst/7 stoðsendingar, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir 11/9 fráköst, Rebekka Rut Steingrímsdóttir 7/11 fráköst, Anna María Magnúsdóttir 5, Perla Jóhannsdóttir 0, Helena Haraldsdottir 0, Arndís Rut Matthíasdóttir 0, Kristrún Edda Kjartansdóttir 0, Kaja Gunnarsdóttir 0, Klara Líf Pálsdottir 0.

Keflavík: Sara Rún Hinriksdóttir 18/4 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 16/6 fráköst, Keishana Washington 13/6 stoðsendingar, Thelma Dís Ágústsdóttir 10/6 fráköst/5 stoðsendingar, Angelina Turmel 6, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 5, Katla Rún Garðarsdóttir 4, Anna Ingunn Svansdóttir 3, Agnes María Svansdóttir 2, Sofie Tryggedsson Preetzmann 1/4 fráköst, Eva Kristín Karlsdóttir 1, María Jónsdóttir 0.