Segja unnt að taka 18 mánaða börn inn á leikskóla í síðasta lagi í ágúst
Meirihluti menntaráðs Reykjanesbæjar segir markmið sveitarfélagsins um að taka börn inn á leikskóla frá 18 mánaða aldri munu nást á árinu, í síðasta lagi við innritun í ágúst 2026. Jafnvel geti orðið svigrúm til að taka inn enn yngri börn ef ytri aðstæður haldast góðar.
Þetta kemur fram í umfjöllun menntaráðs á fundi 6. febrúar, þar sem Helgi Arnarson, sviðsstjóri menntasviðs, kynnti greinargerð um stöðu leikskólamála. Þar var meðal annars farið yfir fjölda barna á leikskólaaldri, heildarfjölda leikskólaplássa og svigrúm sveitarfélagsins til að standa við 18 mánaða markmiðið.
Samkvæmt greiningunni eru leikskólapláss í Reykjanesbæ alls 1.190. Meirihluti ráðsins segir að þegar rýnt sé í núverandi fjölda barna á leikskólaaldri í sveitarfélaginu sé ljóst að mögulegt sé að taka inn öll 18 mánaða börn og jafnvel yngri.
Í bókun meirihlutans er þó varað við að staðan geti breyst hratt með fjölgun íbúa og að mönnun leikskólanna með fagmenntuðu starfsfólki skipti sköpum, samhliða því að standa vörð um faglegt starf leikskólanna.
Sjálfstæðisflokkur: „Vinnu mjög ábótavant“ og biðlistar lengri en annars staðar
Ríkharður Ibsen (D) lagði fram bókun þar sem hann gagnrýnir vinnuna og segir skorta heildstæða greiningu. Hann segir biðlista Reykjanesbæjar „mun lengri en annarra sveitarfélaga“ og að sveitarfélagið standi „afar illa að vígi“ þegar kemur að því að taka börn inn við 18 mánaða aldur, þrátt fyrir loforð síðustu tveggja kjörtímabila.
Ríkharður segir jafnframt að staðan virðist „langverst í Reykjanesbæ“ miðað við sambærileg sveitarfélög, að skortur sé á gögnum, sannreyndum tölum og samanburðargreiningu – og að slök staða í leikskólamálum geti haft áhrif á samkeppnishæfni sveitarfélagsins.






