Sporthúsið
Sporthúsið

Fréttir

Lögreglan á Suðurnesjum leiddi umfangsmikla alþjóðlega aðgerð gegn kókaínsmygli
Þriðjudagur 10. febrúar 2026 kl. 16:56

Lögreglan á Suðurnesjum leiddi umfangsmikla alþjóðlega aðgerð gegn kókaínsmygli

 – 11 handteknir hér á landi

Lögreglan á Suðurnesjum, í samstarfi við íslensk og erlend löggæsluyfirvöld, hefur upprætt fjölþjóðlegan skipulagðan brotahóp sem talinn er hafa staðið fyrir umfangsmiklum innflutningi fíkniefna frá Suður-Ameríku til Evrópu, meðal annars kókaíns. Hópurinn er sagður hafa haft um 4 milljónir evra í ólögmætum hagnaði af starfseminni.

Aðgerðirnar fóru fram í tengslum við samræmda rannsókn lögreglu og ákæruvalds á Íslandi, í Litháen og á Spáni, með stuðningi Europol og Eurojust. Rannsóknin hér á landi hefur staðið yfir í tæpt ár með aðkomu Tollgæslunnar og náði hámarki með samhæfðum alþjóðlegum aðgerðardegi 4. febrúar sl.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Alls voru 24 handteknir í aðgerðunum: 11 á Íslandi, sex í Litháen, fjórir á Spáni, tveir í Belgíu og einn í Danmörku. Þá hefur verið gefin út ein norræn og þrjár evrópskar handtökuskipanir af hálfu Íslands á fjóra hinna handteknu, í Danmörku og á Spáni. Þrír íslenskir lögreglumenn fóru til Spánar í tengslum við aðgerðina.

Í tilkynningu lögreglu segir að farið hafi verið í fjölda húsleita og að hald hafi verið lagt á mikið magn muna og raftækja, auk fjármuna, rafmyntaveskis, greiðslukorta og armbandsúra.

Brotahópurinn er sagður hafa reitt sig að mestu á svokölluð „burðardýr“ – einstaklinga í viðkvæmri stöðu – til að flytja efnin milli landa. Kókaín var falið ýmist í farangri eða flutt innvortis með því að gleypa pakkningar og í sumum tilfellum var efnið flutt í fljótandi formi.

Rannsókn lögregluyfirvalda leiddi jafnframt í ljós að eftir að efnin komu til Íslands sá brotahópurinn sjálfur um dreifingu þeirra hér á landi. Ólögmæti hagnaðurinn er talinn hafa verið þvættaður meðal annars í gegnum fasteignir og aðrar eignir í Litháen.

Vegna umfangs starfseminnar var unnið í gegnum Europol og síðar einnig Eurojust og komu yfirvöld á Íslandi og í Litháen á fót sameiginlegu rannsóknarteymi (JIT). Eftir fundi í Haag í Hollandi varð ljóst að hópurinn var einnig með virka starfsemi í Danmörku og Belgíu, auk Íslands, Litháens og Spánar. Þá átti lögregla samstarf við fíkniefnalögreglu Dóminíska lýðveldisins.

Lögreglan vinnur nú að úrvinnslu haldlagðra gagna og skýrslutökum af hinum handteknu í öllum löndunum. Þá fundust símtæki og aðrir rafrænir munir við leitir í fimm af níu fangaklefum, sem nú er unnið að því að afrita og rannsaka, enda grunur um að tækin hafi verið notuð í áframhaldandi skipulagningu brotastarfsemi.

Að rannsókninni hér á landi standa embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem fer með rannsókn málsins, embætti héraðssaksóknara, embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og embætti ríkislögreglustjóra. Lögreglan segir að rannsóknarhagsmunir séu ríkir og málið afar umfangsmikið, en rannsókn á ætlaðri skipulagðri brotastarfsemi hópsins hefur staðið óslitið frá febrúar 2025.