Keflavíkurkonur VÍS bikarmeistarar í körfu í 17. sinn
Keflvíkingar eru VÍS-bikarmeistarar í körfu kvenna í 17. skipti eftir sigur á Grindavík í úrslitaleik í kvöld. Lokatölur 92-83 í skemmtilegum leik þar sem Keflvíkingar voru í forystusætinu meirihluta leiksins.
Keflavík var með sex stiga forskot eftir fyrsta leikhluta, 27-21. Grindvíkingar komu til baka og leiddu með tveimur stigum í leikhlé 45-57.
Baráttan og liðsheildin var meiri hjá Keflavík. Þá átti Keishana Washington frábæran leik. Hún skoraði 36 stig, tók átta fráköst og gaf ellefu stoðsendingar.
„Það var frábært að klára þetta og vinna bikarinn. Við mættum tilbúnar og börðust vel gegn sterku liði. Við lékum vel og áttum sigurinn skilið,“ sagði Washington eftir leikinn.
Farhiya Abdi átti frábæran leik hjá Grindavík og skoraði 29 stig. Abby Claire Beaman skoraði 22 stig og Ellen Nystrom skoraði 19 stig.
Keflavík-Grindavík 92-83 (27-21, 18-26, 25-13, 22-23)
Keflavík: Keishana Washington 36/8 fráköst/11 stoðsendingar, Angelina Turmel 10/4 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 10/4 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 8/5 fráköst, Thelma Dís Ágústsdóttir 8/6 stoðsendingar, Sofie Tryggedsson Preetzmann 8/5 fráköst, Agnes María Svansdóttir 6, Anna Lára Vignisdóttir 4, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 2/4 fráköst, Eva Kristín Karlsdóttir 0, Bríet Sif Hinriksdóttir 0, Katla Rún Garðarsdóttir 0.
Grindavík: Farhiya Abdi 29, Abby Claire Beeman 22/5 fráköst/12 stoðsendingar, Ellen Nystrom 19/8 fráköst, Þórey Tea Þorleifsdóttir 8, Emilie Sofie Hesseldal 3/10 fráköst, Isabella Ósk Sigurðardóttir 2/4 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson, Jakob Árni Ísleifsson
Áhorfendur: 1890




