Stórleikur Veigars dugði ekki í Garðabænum.
Stórleikur Veigars Páls Alexanderssonar dugði Njarðvík ekki gegn Stjörnunni í leik liðanna í 17. umferð Bónus deildar karla í körfubolta í Garðabæ. Íslandsmeistararnir unnu tíu stiga sigur 113-103.
Garðbæingar unnu fyrstu tvo leikhlutana og leiddu með 14 stigum í hálfleik. Njarðvíkingar unnu seinni hálfleikinn með fjórum stigum en það var ekki nóg.
Veigar Páll Alexandersson fór mikinn fyrir þá grænu og skoraði 32 stig og Dwayne L. Ogunleye skoraði 17.
Hjá Stjörnunni var Luka Gasic með 34 stig og Orri Gunnarsson var með 26.
Njarðvík er í 9. sæti deildarinnar með 12 stig og hafa aðeins unnið sex leiki það sem af er, tapað ellefu. Það eru aðeins fimm leikir eftir áður en úrslitakeppnin hefst og Njarðvíkingar heyja harða baráttu við Álftanes og ÍR sem eru tveimur stigum fyrir ofan í töflunni.
Það verður stórleikur í Keflavík á föstudagskvöld þegar Grindvíkingar, efsta lið deildarinnar, mæta í heimsókn en Keflavík er í 5.-6. sæti með 20 stig.
Stjarnan-Njarðvík 113-103 (35-26, 31-26, 22-24, 25-27)
Stjarnan: Luka Gasic 34/7 fráköst, Orri Gunnarsson 26, Hilmar Smári Henningsson 14/4 fráköst/6 stoðsendingar, Pablo Cesar Bertone 13, Ægir Þór Steinarsson 12/7 fráköst/12 stoðsendingar, Seth Christian LeDay 9/9 fráköst, Bjarni Guðmann Jónson 4/4 fráköst, Viktor Jónas Lúðvíksson 1, Björn Skúli Birnisson 0, Atli Hrafn Hjartarson 0, Jakob Kári Leifsson 0, Aron Kristian Jónasson 0.
Njarðvík: Veigar Páll Alexandersson 32, Dwayne Lautier-Ogunleye 17/7 fráköst, Sven Smajlagic 17/9 fráköst/5 stoðsendingar, Luwane Pipkins 15/6 fráköst/5 stoðsendingar, Dominykas Milka 13/4 fráköst, Brynjar Kári Gunnarsson 5, Snjólfur Marel Stefánsson 4, Ómar Helgi Kárason 0, Viktor Máni Ólafsson 0, Kristófer Mikael Hearn 0, Sigurður Magnússon 0, Guðmundur Aron Jóhannesson 0.
Dómarar: Jóhannes Páll Friðriksson, Gunnlaugur Briem, Eggert Þór Aðalsteinsson
Áhorfendur: 431






