Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí
Sjálfstæðisflokkurinn - 16. maí

Íþróttir

Njarðvík í úrslit: „Ég treysti þessum stelpum fáránlega vel“
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 21:37

Njarðvík í úrslit: „Ég treysti þessum stelpum fáránlega vel“

„Það er bara svakalega flottur karakter og stóra hjartað sem er að skila þessu hérna í dag,“ sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, í samtali við Víkurfréttir eftir að Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitum Bónusdeildar kvenna í körfuknattleik með sigri á Grindavík í hreinum úrslitaleik í kvöld.

Einvígi Suðurnesjaliðanna var vægast sagt dramatískt, en Njarðvíkingar sýndu mikinn styrk þegar á reyndi í oddaleiknum. Einar segir að andlegur styrkur liðsins hafi gert gæfumuninn þegar mótlætið bar að garði.

Aðalbros
Aðalbros
Svaf eins og ungbarn fyrir leikinn

Þrátt fyrir mikla spennu í kringum leikinn og úrslitaseríuna viðurkenndi Einar að hann hefði ekki fundið fyrir stressi. Hann deildi skemmtilegri sögu af samtali við ömmu sína fyrr um daginn.

„Ég sagði við ömmu í dag, sem er á níræðisaldri, þegar hún spurði mig hvort ég væri stressaður, að ég væri búinn að sofa fáránlega vel síðustu daga. Og það er bara af því að ég treysti þessum stelpum fyrir verkefninu,“ sagði Einar pollrólegur.

Trúin og traustið lykillinn

Aðspurður um hvað geri Njarðvíkurliðið svona öflugt segir Einar að grunnurinn hafi verið lagður fyrir löngu. Það sé ekki síst skýr hlutverkaskipan sem skili liðinu svona langt.

„Þetta byrjaði fyrir tveimur árum. Ég held að það skilji allir sína rullu mjög vel og reyni að mastera hana. Það sýndi sig til dæmis með Sofiu Roma í dag. Hún kom til okkar til að leysa af vegna meiðsla, hefur spilað fáar mínútur í seríunni en var bara geggjuð í dag.“

„Tvö bestu liðin mætast“

Fram undan er úrslitaeinvígi gegn Haukum um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn. Einar segist spenntur fyrir framhaldinu og ber mikla virðingu fyrir andstæðingnum.

„Haukarnir eru frábært lið og ég vil trúa því að þarna mætist tvö bestu liðin,“ sagði Einar að lokum áður en hann hélt inn í klefa að fagna með sínum konum.

Bónus deild kvenna, Úrslitakeppni

Njarðvík-Grindavík 83-72 (20-14, 24-17, 14-20, 25-21)
http://kki.is/widgets_game.asp?season_id=130422&game_id=6141376

Njarðvík: Brittany Dinkins 23/7 fráköst/9 stoðsendingar, Danielle Victoria Rodriguez 20/17 fráköst/7 stoðsendingar, Sofia Roma 13/8 fráköst, Krista Gló Magnúsdóttir 9, Hulda María Agnarsdóttir 8, Sara Björk Logadóttir 4, Paulina Hersler 3, Helena Rafnsdóttir 3, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0, Helga Jara Bjarnadóttir 0, Inga Lea Ingadóttir 0, Kristín Björk Guðjónsdóttir 0.

Grindavík: Ellen Nystrom 22/5 fráköst, Abby Claire Beeman 17/6 fráköst/7 stoðsendingar, Farhiya Abdi 15/5 fráköst, Emilie Sofie Hesseldal 10/7 fráköst, Ólöf Rún Óladóttir 4, Isabella Ósk Sigurðardóttir 4/10 fráköst, Jenný Geirdal Kjartansdóttir 0, Ólöf María Bergvinsdóttir 0, María Sóldís Eiríksdóttir 0, Eyrún Hulda Gestsdóttir 0, Telma Hrönn Loftsdóttir 0, Þórey Tea Þorleifsdóttir 0.

Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friðriksson, Davíð Kristján Hreiðarsson
Áhorfendur: 504
Viðureign: 3-2

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar