Íþróttir

Knattspyrnudeild Njarðvíkur ræður nýjan aðalþjálfara liðsins
Arnar Hallsson stýrir Njarðvík í Lengjudeild karla á næsta ári. Mynd af Facebook-síðu knattspyrnudeildar Njarðvíkur
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
þriðjudaginn 27. september 2022 kl. 09:40

Knattspyrnudeild Njarðvíkur ræður nýjan aðalþjálfara liðsins

Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur náð samkomulagi við Arnar Hallson um hann taki við sem aðalþjálfari meistaraflokks. Arnar hefur á sínum ferli m.a. þjálfað meistaraflokk karla hjá Aftureldingu og ÍR.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Njarðvíkur og þar segir jafnframt:

„Njarðvík býður Arnar velkominn til starfa hjá félaginu og vonast til að samstarfið verði farsælt. Arnar er nú staddur ásamt fjölskyldu sinni vestanhafs þar sem hann mun fagna 50 ára afmæli sínu á morgun. Við hlökkum til að taka á móti Arnari í vallarhúsinu þegar hann kemur til baka.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þá hefur Hólmar Örn Rúnarsson jafnframt ákveðið að segja skilið við Njarðvík en hann og Bjarni Jóhannsson tóku við liðinu í nóvember 2020 og gerðu Njarðvíkinga að 2. deildarmeisturum í sumar ásamt því að komast í sextán liða Mjólkurbikars karla.

„Við viljum nýta tækifærið til þess að þakka Bóa fyrir góð störf í þágu félagsins og óska honum góðs gengis í þeim verkefnum sem hann tekur fyrir höndum,“ segir ennfremur í færslu knattspyrnudeildarinnar.