Sporthúsið
Sporthúsið

Íþróttir

Keflvíkingar áfram taplausir heima og með montréttinn um jólin - Grindvíkingar efstir í deildinni
Fimmtudagur 18. desember 2025 kl. 22:41

Keflvíkingar áfram taplausir heima og með montréttinn um jólin - Grindvíkingar efstir í deildinni

Keflavík vann Njarðvík 93:83 í grannaslag Reykjanesbæjar í Bónusdeild karla í körfuknattleik í kvöld eftir spennandi leik þar sem gestirnir leiddu í hálfleik en heimamenn kláruðu af miklum krafti á lokakaflanum. Með sigrinum eru Keflvíkingar áfram taplausir á heimavelli á tímabilinu og montrétturinn er þeirra um jólin. Grindvíkingar eru hins vegar efstir í deildinni en þeir sigruðu Þórsara í Þorlákshöfn 94-106.

Leikurinn í Bluehöllinni hófst á kafla sem Njarðvíkingar vilja gleyma: þeir skoruðu ekki körfu fyrstu fjórar mínúturnar og Keflavík komst í 6:0. Njarðvík náði þó fljótt takti, Dominykas Milka og Dwayne Lautier komu þeim inn í leikinn og eftir jafnan fyrsta leikhluta var staðan 15:14 fyrir Keflavík.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Í öðrum leikhluta var Njarðvík lengi vel skrefi á undan og komst m.a. í 10 stiga forskot þegar leið á. Keflavík svaraði hins vegar með öflugum lokakafla. Craig Moller setti stóran þrist og Egor Koulechov setti niður vítaskot til að saxa á muninn. Í hálfleik var staðan 42:44 fyrir Njarðvík og allt galopið.

Seinni hálfleikur var spennuþrunginn fyrir bæði lið, sem skiptust á forystu og jöfnuðu ítrekað. Stemmningin í BLUE-höllinni fór stigvaxandi. Fyrir lokaleikhlutann var Keflavík með naumt forskot, 63:61.

Í fjórða leikhluta voru heimamenn svellkaldir. Milka jafnaði 66:66 með afar mikilvægum þristi, en Keflavík svaraði strax. Darryl Morsell setti risastóran þrist og seinna kom höggið fyrir Njarðvík þegar Craig Moller setti annan þrist og staðan fór í 89:81 þegar um mínúta var eftir.

Milka fékk sína fimmtu villu og var úr leik en hann hafði verið stigahæstur gestanna. Keflavík kláraði svo af öryggi og landaði 10 stiga sigri, 93:83.

Keflavík-Njarðvík 93-83 (15-14, 27-30, 21-17, 30-22)

Keflavík: Craig Edward Moller 24/12 fráköst, Darryl Latrell Morsell 20/12 fráköst/7 stoðsendingar, Egor Koulechov 19/5 fráköst, Mirza Bulic 13, Hilmar Pétursson 7/6 fráköst/5 stoðsendingar, Jaka Brodnik 5, Ólafur Björn Gunnlaugsson 3, Halldór Garðar Hermannsson 2, Nikola Orelj 0, Frosti Sigurðarson 0, Eyþór Lár Bárðarson 0, Valur Orri Valsson 0.
Njarðvík: Dominykas Milka 29/19 fráköst, Dwayne Lautier-Ogunleye 19/7 fráköst/5 stoðsendingar, Brynjar Kári Gunnarsson 11, Veigar Páll Alexandersson 10/4 fráköst/3 varin skot, Snjólfur Marel Stefánsson 6/5 fráköst, Julio Calver De Assis Afonso 5/4 fráköst, Bóas Orri Unnarsson 3, Guðmundur Aron Jóhannesson 0, Kristófer Mikael Hearn 0, Sigurbergur Ísaksson 0, Sigurður Magnússon 0, Brandon Averette 0.

Þór Þ.-Grindavík 94-106 (23-19, 28-26, 25-26, 18-35)

Þór Þ.: Jacoby Ross 28/6 fráköst/8 stoðsendingar, Djordje Dzeletovic 20/10 fráköst, Lazar Lugic 12/5 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 12, Emil Karel Einarsson 10/5 fráköst, Skarphéðinn Árni Þorbergsson 6, Ísak Júlíus Perdue 4/5 fráköst, Tristan Alexander Szmiedowicz 2, Matthías Geir Gunnarsson 0, Arnór Daði Sigurbergsson 0, Baldur Böðvar Torfason 0, Rafail Lanaras 0.
Grindavík: Khalil Shabazz 31/6 fráköst, Deandre Donte Kane 28/10 fráköst, Ólafur Ólafsson 16/7 fráköst, Daniel Mortensen 11/9 fráköst/9 stoðsendingar, Jordan Semple 10/8 fráköst, Arnór Tristan Helgason 7, Kristófer Breki Gylfason 3, Alexander Veigar Þorvaldsson 0, Ragnar Örn Bragason 0, Isaiah Coddon 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0.
Dómarar: Gunnlaugur Briem, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson, Aron Rúnarsson
Áhorfendur: 204

Keflavík - Njarðvík 93:83 // 18. desember 2025