Keflavík þarf að treysta á hagstæð úrslit eftir tap gegn Val
Keflvíkingar þurfa að bíða úrslita í öðrum leikjum á sunnudag til að sjá hvort þeir endi í efri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir tap á Ljósanæturlaugardegi gegn Valsmönnum á HS Orku vellinum í dag. Lokatölur 1-2.
Gestirnir voru betri aðilinn fyrstu mínúturnar en heimamenn áttu sínar sóknir og héldu síðan boltanum meira í fyrri hálfleik en náðu ekki að skapa sér nógu góð marktækifæri. Gestirnir skoruðu ódýrt mark á 36. mínútu og leiddu með því marki í hálfleik.
Þeir bættu síðan við öðru marki á 53. mínútu þegar Dagur Orri Garðarson skoraði eftir klúður í vörn heimamanna. Eftir þetta tóku heimamenn smám saman öll völd á vellinum. Það skilaði marki á 69. mínútu. Marin Mudrazija skoraði af stuttu færi eftir markskot frá Degi Inga Valssyni. Á 89. mínútu var Muhamed Alghoul felldur í vítateig Valsmanna og heimamenn héldu að þeir væru að fá víti en dómarinn var á öðru máli. Keflvíkingar pressuðu mikið en tókst ekki að jafna leikinn.
Keflvíkingar töpuðu sínum öðrum leik í röð í tveimur síðustu leikjum deildarinnar fyrir umskiptingu í úrslitakeppni. Þeir Þessi úrslit þýða að Keflvíkingar þurfa að treysta á hagstæð úrslit í leikjum ÍA og Stjörnunnar á morgun, til að halda sér í efri hluta deildarinnar. ÍA er stigi á eftir Keflavík en með marki betra. Stjarnan er tveim stigum á eftir en þremur mörkum verra hlutfall.

852 áhorfendur voru á pöllunum í Keflavík í dag.








