BM Vallá 1-10 sept

Íþróttir

Grindvíkingar féllu - Njarðvíkingar unnu topplið Aftureldingar
Grindvíkingar eru fallnir í 2. deild karla. VF/hilmarbragi.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 5. september 2026 kl. 18:52

Grindvíkingar féllu - Njarðvíkingar unnu topplið Aftureldingar

Grindvíkingar eru fallnir í 2. deild karla í knattspyrnu eftir jafntefli gegn lang neðsta liði Lengjudeildar. Njarðvíkingar eru hinum megin í deildinni og sigruðu topplið Aftureldingar í lokaumferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu á heimavelli í dag. Lokatölur 2-1 og með sigrinum enda Njarðvíkingar í 5. sæti deildarinnar og leika gegn Þrótti í undanúrslitunum.

Heimamenn í Njarðvík voru miklu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og fengu mörg marktækifæri. Þeir nýtt tvö þeirra. Viktor Nói Viðarsson skoraði á 16. mínútu. Hrafn Guðmundsson tvöfaldaði forskot UMFN eftir hornspyrnu. Arnleifur sendi boltann með skalla á Omar Diouck sem framlengdi hann með höfðinu til Arnleifs sem stangaði hann í netið 2-0.

Seinni hálfleikur var tíðindaminni og gestirnir úr Aftureldinu minnkuðu muninn á 88. mínútu en þar við sat og heimamenn tóku þrjú stigin.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

UMFN leikur fyrri leikinn gegn Þrótti 9. september en þann seinni 13. sept. Um útsláttarkeppni er að ræða og sigurliðin mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni í lok september.

Það hlýtur að koma á óvart að Grindvíkingar séu á leiðinni í 2. deild. Þeir komust í 0-1 forystu gegn Ægi í leik liðanna í dag. Heiðar Snær Ragnarsson kom liðinu í forystu á 16. mínútu en þrátt fyrir færi tókst ekki að auka það forskot í fyrri hálfleik. Það var síðan eins og blaut tuska í andlit Grindvíkinga að fá á sig mark á 62. mínútu. Þeim tókst ekki að bæta við marki og jafntefli dugði ekki því Völsungur sem var með stigi minna í næst neðsta sæti vann sinn leik og Grindvíkingar sátu eftir í næst neðsta sæti og falla.

Bílakjarninn
Bílakjarninn