„Komum á fljúgandi siglingu inn í þennan leik“
Kvennalið Grindavíkur/Njarðvíkur mætir Þrótti Reykjavík í bikarúrslitaleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli nk. laugardag. Þetta er í fyrsta sinn sem samstarfsliðið kemst í bikarúrslit og ljóst er að nýtt nafn verður ritað á bikarinn, en hvorugt liðið hefur unnið hann áður. Leikurinn er því sögulegur fyrir Suðurnesjakonurnar í Grindavík/Njarðvík.
Gylfi Tryggvason, þjálfari Grindavíkur/Njarðvíkur, segir stemninguna í hópnum vera mjög góða fyrir stóra leiknum, þrátt fyrir að biðin hafi verið löng síðan liðið tryggði sér sætið með 0-3 útisigri á Fram í lok júlí.
„Það leggst bara mjög vel í okkur. Við erum búin að bíða lengi eftir leiknum og liðið er mjög spennt. Við komum á fljúgandi siglingu inn í þennan leik og hlökkum mikið til að fá að upplifa þetta,“ segir Gylfi.
Miklar mannabreytingar í sumar
Tímabilið hjá liðinu hefur verið nokkuð sérstakt en mikil hreyfing hefur verið á leikmannahópnum. Um 12 til 13 leikmannabreytingar hafa átt sér stað á tímabilinu og telur Gylfi það skýra ákveðinn óstöðugleika í leik liðsins, sem hefur átt mjög stóra sigra en líka leiki þar sem mikið hefur verið skorað gegn því.
„Við vorum með unga leikmenn sem fóru í háskóla í Bandaríkjunum, meidda leikmenn, lánsmenn sem voru kallaðir til baka og leikmenn sem við seldum. Sumt af þessu var undirbúið en annað ekki, eins og meiðslin. En okkur tókst að púsla saman samkeppnishæfu liði, tryggja okkur áfram í deildinni og komast í bikarúrslitin. Nú þurfum við bara að klára þetta á laugardaginn.“
Hörkuleikir gegn Þrótti
Mótherjarnir í Þrótti R. eru vel þekktir en liðin hafa mæst fimm sinnum á tímabilinu ef vetrarmótin eru talin með. Gylfi býst við hörkuleik.
„Það er alltaf gaman að spila við Þrótt. Þetta hafa alltaf verið hörkuleikir og ég held að þetta verði mjög áhugaverður leikur að mörgu leyti.“
Natasha Anasi, sem skoraði eitt af mörkunum í undanúrslitaleiknum gegn Fram, sagði eftir þann leik að liðið væri stolt af sínum árangri sem nýliðar í efstu deild: „Ég held að við séum búin að sýna fullt af fólki að við getum alveg spilað í efstu deild. Við erum að spila skemmtilegan fótbolta og gera flotta hluti.“
Mætum gul, græn og bleik!
Fram undan er því sögulegur dagur fyrir knattspyrnuna í Grindavík og Njarðvík. Hvetja forráðamenn liðsins alla Suðurnesjamenn til að mæta gulu, grænu og bleiku á Laugardalsvöll á laugardaginn og öskra stelpurnar áfram til sigurs. Miðasala er í fullum gangi á midasala.ksi.is.







