Vogar taka þátt í þróun smáforrits – A-listinn gagnrýnir óljósan kostnað
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga samþykkti á fundi sínum 27. október að taka þátt í þróunarverkefni um smáforrit fyrir sveitarfélög. Tillagan var samþykkt með tveimur atkvæðum gegn einu og var bæjarstjóra falið að ganga frá verklýsingu og samningum og undirrita þá.
Fulltrúi A-listans greiddi atkvæði gegn þátttökunni. Í bókun listans er gerð athugasemd við að raunkostnaður sveitarfélagsins liggi ekki fyrir og óljóst sé hversu mikils vinnuframlags verkefnið krefjist af hálfu þess. A-listinn telur fjármununum betur varið í önnur verkefni.
Meirihluti bæjarráðs telur hins vegar þátttökuna hagkvæma fjárfestingu í bættri þjónustu og upplýsingagjöf til íbúa. Í bókun meirihlutans segir að fyrir liggi bæði kostnaðaráætlun og áætlun um vinnuframlag starfsfólks við innleiðingu verkefnisins.
Þá leggur meirihlutinn áherslu á að sveitarfélagið nýti tækifæri til stafrænnar þróunar og telur fjármunum og vinnutíma vel varið til að bæta þjónustu við íbúa.





