Fréttir

Telja að aflögun við Grindavík sé ekki vegna kviku
Á gervihnattamyndum, sem sýna landbreytingar á Reykjanesskaga frá lok júlí, má sjá merki um aflögun skammt norðaustur af Grindavík. (Sjá svæði innan svarta kassans á myndinni).
Þriðjudagur 9. ágúst 2022 kl. 18:16

Telja að aflögun við Grindavík sé ekki vegna kviku

Vísindaráð Almannavarna fundaði á þriðjudagsmorgun um eldgosið á Reykjanesskaga. Farið var yfir nýjustu gögn og mælingar til að meta stöðuna og framhald gossins. Er það mat vísindamanna að framgangur gossins er eins og við mátti búast. Gosvirknin hefur haldist nokkuð stöðug síðustu daga og er mikilvægt að undirbúa sig undir að gosið standi yfir í nokkuð langan tíma.

Á gervihnattamyndum, sem sýna landbreytingar á Reykjanesskaga frá lok júlí, má sjá merki um aflögun skammt norðaustur af Grindavík (sjá svæði innan svarta kassans á myndinni með fréttinni). Aflögunin sem sést á gervihnattamyndunum er við upptök skjálftans sem varð 31. júlí og mældist M5,5.

Á fundi vísindaráðs var farið yfir önnur gögn frá svæðinu, s.s. GPS-mælingar, skjálftagögn og sýna þau engar vísbendingar um að kvika sé þarna á ferðinni og líklegast skýringin sé breytingar á yfirborði sem urðu í skjálftanum fyrir um tíu dögum síðan. Engu að síður munu vísindamenn safna frekari gögnum til að staðfesta ennfrekar að svo sé.

Rætt var að mikilvægt væri að auka vöktun enn frekar á þeim umbrotasvæðum sem geta haft áhrif nærri byggð með því að setja upp fleiri mælitæki til rauntímavöktunar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024