Fréttir

Nýr grunnskóli rís í Innri-Njarðvík
Fyrir er Akurskóli í Innri-Njarðvík. Mynd ozzo.
Miðvikudagur 28. desember 2016 kl. 13:56

Nýr grunnskóli rís í Innri-Njarðvík

Fyrsti áfangi tekinn í notkun haustið 2018

Undirbúningur við nýjan grunnskóla í Dalshverfi í Innri Njarðvík er hafinn en áætlað er að fyrsti áfangi skólans verði tekinn í notkun haustið 2018. Skólabörnum hefur fjölgað mikið í hverfinu undanfarin ár. 

Þá hefur Háaleitisskóli verið stækkaður og þar nýttar kennslustofur sem ekki höfðu verið í notkun frá því herinn fór. Húsgögn í grunnskólum bæjarins hafa verið endurnýjuð að hluta og aðstaða á skólalóðum bætt, en þetta voru meðal umkvörtunarefna ungmennaráðs, sem funda með bæjarstjórn tvisvar á ári.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024