Reykjanes Optikk
Reykjanes Optikk

Fréttir

Leki kom að fiskibát vestur af Hafnabergi
Njörður, bátur Björgunarsveitarinnar Suðurnes, sjósettur í Sandgerði nú síðdegis. Hann fór á vettvang undan Hafnabergi. VF/hilmarbragi
Mánudagur 5. janúar 2026 kl. 18:20

Leki kom að fiskibát vestur af Hafnabergi

Leki kom að fiskibát sem staddur var um tvær sjómílur vestur af Hafnabergi á fimmta tímanum í dag. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning um atvikið klukkan 16:15 og var brugðist skjótt við.

Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kölluðu út TF-GNA, þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem var á æfingu í Hvalfirði, auk sjóbjörgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðurnesjum.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Tveir voru um borð í bátnum og hófu þeir þegar að dæla sjó úr honum en samkvæmt fyrstu upplýsingum höfðu dælurnar illa undan.

Þyrlan TF-GNA lendir í Sandgerði til að sækja dælur sem voru fluttar um borð í fiskibátinn. Mynd: Aðsend

Þyrlan var komin á vettvang rúmum tuttugu mínútum eftir að útkallið barst. Ekki var talin þörf á að hífa mennina um borð en ákveðið var að þyrlan færi til Sandgerðis til að sækja sjódælur til að hraða útdælingunni.

Sigmaður þyrlunnar seig niður til mannanna með dælurnar og um svipað leyti komu björgunarskip Landsbjargar á vettvang með mannskap og fleiri dælur. Vel gekk að dæla sjó úr bátnum.

Bátnum er nú fylgt til hafnar af Hannesi Þ. Hafstein, björgunarskipi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, og hefur þyrlu Landhelgisgæslunnar verið snúið aftur til Reykjavíkur.