Fyrstu altjónshúsin rifin á næstu vikum
Undirbúningi að niðurrifi altjónaðra fasteigna í Grindavík miðar vel áfram og stefnt er að því að fyrsta örútboð vegna verkefnisins verði auglýst í janúar. Gert er ráð fyrir að niðurrif á þremur fasteignum hefjist á næstu vikum, en það eru Mánasund 2, Mánagata 19 og Mánagata 21. Frá þessu er greint á vef Grindavíkurbæjar.
Alls eru áætlaðar 35–40 altjónaðar fasteignir í bænum. Í mörgum tilvikum er niðurrif þeirra forsenda þess að hægt sé að ráðast í sprunguviðgerðir innanbæjar eða aðrar nauðsynlegar aðgerðir á afgirtum svæðum í þéttbýlinu. Með niðurrifi og viðgerðum er gert ráð fyrir að afgirtum svæðum fækki, sem er talinn mikilvægur þáttur í endurreisn bæjarins.
Grindavíkurbær er verkkaupi framkvæmdarinnar og ber ábyrgð á framkvæmdinni, samskiptum og greiðslum við verktaka, auk þess að tryggja að lögboðnum úttektum verði lokið við verklok.
Ákvörðun um niðurrif einstakra húsa liggur hjá húseigendum, en þeim stendur til boða að gera samning við Grindavíkurbæ um að bærinn annist niðurrif í umboði eiganda gegn umsýslukostnaði. Með slíku umboði sér bærinn meðal annars um helsta undirbúning, ráðningu byggingarstjóra, leyfisumsóknir, aftengingu veitna og skil lóðar að niðurrifi loknu.
Fasteignafélagið Þórkatla, sem á meirihluta altjónseigna í Grindavík, hefur þegar gert samkomulag við bæinn um þátttöku í verkefninu. Aðrir eigendur hafa verið upplýstir um ferlið og eiga möguleika á að fá frekari upplýsingar á fundi með fulltrúum Grindavíkurbæjar.
Fyrir liggur rammasamningur milli Grindavíkurbæjar og níu verktakafyrirtækja: Berg verktakar, Berserkir, Ellert Skúlason, Guðlaugsson, H2Orka, Jón og Margeir, Sveinsverk, Urð og grjót og Víkurfrakt. Á grundvelli rammasamningsins verða örútboð auglýst með það að markmiði að tryggja skilvirkt ferli og hagkvæm tilboð í samræmi við lög um opinber innkaup.
Að niðurrifi loknu tekur sprunguviðgerðarteymi við og stýrir viðgerðum á viðkomandi svæðum. Þá er undirbúningur að nýju skipulagi þegar hafinn hjá Grindavíkurbæ og hafa fyrstu hugmyndir verið kynntar íbúum.
Nánari upplýsingar um framkvæmd, tímasetningar og áhrif á nærliggjandi svæði verða kynntar þegar nær dregur framkvæmdum.





