Jóhann Helgason og Magnús Þór Sigmundsson útnefndir Listamenn Reykjanesbæjar 2026–2030
Tónlistarmennirnir Jóhann Helgason og Magnús Þór Sigmundsson hlutu stóra heiðursviðurkenningu í dag, á þjóðhátíðardaginn 17. júní, þegar þeir voru útnefndir Listamenn Reykjanesbæjar fyrir tímabilið 2026–2030. Útnefningin fór fram við hátíðardagskrá þjóðhátíðardagsins í bænum.
Nafnbótin Listamaður Reykjanesbæjar er heiðursviðurkenning sem veitt er í lok hvers kjörtímabils listamanni sem hefur með störfum sínum skarað fram úr, haft markverð áhrif á lista- og menningarlíf eða aukið hróður sveitarfélagsins á sínu sviði. Þótt nafnbótin sé að jafnaði veitt einum listamanni í senn þótti dómnefnd og bæjaryfirvöldum eðlilegt að veita hana þeim Jóhanni og Magnúsi sameiginlega að þessu sinni, enda er samstarf þeirra og framlag ríkur þáttur í þeirri tónlistararfleifð sem hefur dafnað í Reykjanesbæ.
Verkin orðin hluti af menningararfi þjóðarinnar
Verk þeirra Magnúsar og Jóhanns hafa skipað þeim í hóp áhrifamestu tónlistarmanna landsins, notið mikilla vinsælda og orðið hluti af sameiginlegum menningararfi þjóðarinnar. Við valið var horft til listræns árangurs þeirra, áhrifa, framlags til menningarlífs og sterkra tengsla þeirra við sveitarfélagið.
„Fáir listamenn hafa átt jafn stóran þátt í að halda nafni Reykjanesbæjar á lofti sem tónlistarbæjar. Verk þeirra hafa fylgt þjóðinni um áratugaskeið og um leið minnt okkur á þá sterku tónlistarhefð sem hér hefur blómstrað,“ sagði Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri þegar hann heiðraði tónlistarmennina.
Með nafnbótinni fylgir viðurkenningarskjal, verðlaunafé og listmunurinn Lífangar eftir leirlistakonuna Arnbjörgu Drífu Káradóttur. Listmunurinn sækir innblástur í líf og náttúruleg form, þar sem nýir lífangar spretta fram eins og ný stef og tilbrigði, líkt og listamennirnir tveir hafa auðgað samfélagið með.
Reykjanesbær óskar Jóhanni og Magnúsi innilega til hamingju með þennan verðskuldaða heiður og þakkar þeim fyrir ómetanlegt framlag til íslenskrar tónlistar.








