Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Gunnar Víðir ráðinn verkefnastjóri markaðsmála
Laugardagur 4. apríl 2020 kl. 07:31

Gunnar Víðir ráðinn verkefnastjóri markaðsmála

Gunnar Víðir Þrastarson hefur verið ráðinn verkefnastjóri markaðsmála hjá Reykjanesbæ. Hann er menntaður grafískur hönnuður frá Arizona State University og hefur lokið MBA gráðu frá Western International University ásamt því að stunda nám í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum í Háskóla Íslands. 

Gunnar hefur margra ára reynslu af störfum sem markaðsstjóri og -ráðgjafi ásamt störfum sem grafískur hönnuður. Undanfarin ár hefur hann meðal annars starfað sem markaðsstjóri hjá Bílabúð Benna og sem hönnunarstjóri og ráðgjafi hjá LarsEn Energy Branding sem sinnir vörumerkjastjórnun og stefnumótun á sviði orkumála.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024